Tjaldsvæðið við Þórunnarstræti verður opið í sumar

Tjaldsvæðið við Þórunnarstræti.
Tjaldsvæðið við Þórunnarstræti.

Tjaldsvæðið við Þórunnarstræti verður opið í sumar og opnar helgina 5.-6. júní. Tryggvi Marinósson, forstöðumaður tjaldsvæðanna á Akureyri, segir í samtali við Vikublaðið ganga út frá því að þetta verði síðasta sumarið sem tjaldsvæðið verði opið. „Við gerum algjörlega ráð fyrir því í okkar plönum þó við vitum það ekki fyrir víst,“ segir Tryggvi.

Eins og fram hefur komið þá stendur til að reisa tvær nýjar heilsugæslustöðvar á Akureyri. Verður önnur þeirra reist á tjaldsvæðisreitnum við Þórunnarstræti og því var áformað að loka tjaldsvæðinu eftir sumarið 2020. Á tjaldsvæðiðsreitnum er auk heilsugæslu gert ráð fyrir íbúðarbyggð og verslun- og þjónustu.

Miklar framkvæmdir við nýjar tjaldflatir að tjaldsvæðinu við Hömrum hafa staðið yfir í tvö ár og segir Tryggvi að þeim framkvæmdum verði haldið áfram af krafti í sumar. Það svæði mun koma í stað tjaldsvæðisins við Þórunnarstætið þegar því lokar.


Athugasemdir

Nýjast