Karlakór Eyjafjarðar fagnar 30 ára starfsafmæli sínu með stórtónleikum í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri laugardaginn 24. október 2026 klukkan 16. Þar verður sannkölluð tónlistarveisla þar sem kórinn, gestasöngvarar og sjö manna hljómsveit sameinast á sviðinu.
Karlakór Eyjafjarðar hefur í þrjá áratugi verið mikilvægur hluti af tónlistar- og menningarlífi á Akureyri og á Eyjafjarðarsvæðinu. Á þeim tíma hefur kórinn komið víða fram, sungið við fjölmörg tækifæri og eignast stóran hóp dyggra áheyrenda. Afmælistónleikarnir eru því tilefni til að líta yfir farinn veg, fagna þeim áfanga sem náðst hefur og um leið horfa fram á veginn.
Eggert Sigurjónsson formaður Karlakórs Eyjafjarðar segir félaga verða rúmlega 40 talsins og komi þeir víða að, en flestir af Eyjafjarðarsvæðinu og Akureyri. Kórinn er með æfingaaðstöðu í Tónlistarhúsinu Laugarborg. „Kórinn hefur frá upphafi unnið eftir þeirri stefnu að hafa léttleika að leiðarljósi og að lagavalið einskorðist ekki við hefðbundin karlakórslög. Kórinn heldur árlega nokkra tónleika á Eyjafjarðarsvæðinu auk þess sem farið er í söngferðalög, flest innanlands en einnig nokkur erlendis, síðast í fyrra til Færeyja,“ segir hann.
Léttleiki í lagavali í fyrirrúmi
Á tónleikunum verður boðið upp á fjölbreytta dagskrá þar sem léttleiki í lagavali og flutningi verður í fyrirrúmi. Á efnisskránni verða lög sem fólk þekkir í flutningi ýmissa vinsælla norðlenska hljómsveita eins og Ingimars Eydal, Gauta, Skriðjökla, Greifanna og Póló og Bjarka svo nokkrar séu nefndar. Einnig verða flutt lög eftir Eirík Bóasson, Bjarna Hafþór Helgason og Óðinn Valdimarsson ásamt sígildum kórlögum t.d. úr „Vesalingunum”. Allmörg þessara laga hefur Guðlaugur Viktorsson söngstjóri útsett sérstaklega fyrir kórinn.
Söngur hefur góð áhrif
„Margar rannsóknir hafa leitt í ljós að kórsöngur hefur góð áhrif á heilsu fólks, bæði andlega og líkamlega,“ segir Eggert og vísar í Graham Welch forstöðumaður tónlistarkennslu við Institute of Education, University of London sem sagði að söngur hefði líkamleg áhrif þar sem það er loftháð starfsemi sem eykur súrefni í blóðrásinni og þjálfar stóra vöðvahópa í efri hluta líkamans. Sálfræðileg áhrif væru einnig augljós hvort sem fólk syngur eitt eða í hóp, en þannig öðlist þátttakendur tilfinningu fyrir samfélaginu, að tilheyra og deila með öðrum
Með kórnum á sviðinu verða tveir öflugir gestasöngvarar, Magni Ásgeirsson og Snorri Snorrason. Þeir munu setja svip sinn á dagskrána og eiga eftir að skapa skemmtilega og eftirminnilega samveru með kórnum. Meðleik annast sjö manna hljómsveit sem Daníel Þorsteinsson fer fyrir og tryggir tónleikunum kraftmikinn og fjölbreyttan hljóðheim. Kynnir verður hinn góðkunni Óskar Pétursson og mun hann leiða gesti í gegnum dagskrána á sinn einstaka og létta hátt.