Þórunn Sif ráðin sveitarstjóri Svalbarðsstrandarhrepps

Þórunn Sif Harðardótttir.
Þórunn Sif Harðardótttir.

Þórunn Sif Harðardóttir hefur verið ráðin sveitarstjóri Svalbarðsstrandarhrepps. Hún tekur til starfa í júlí og er ráðin út kjörtímabilið til 2026. Greint er frá ráðningunni á heimasíðu sveitarfélagsins.

Þórunn Sif starfaði um tíma hjá Svalbarðsstrandarhreppi á árunum 2021-2022 þegar hún leysti skrifstofustjóra tímabundið af og sem verkefnastjóri fyrir göngu- og hjólastíg í Vaðlareit auk fleiri verkefna á skrifstofu hreppsins. Á árunum 2013-2020 starfaði Þórunn Sif sem mannauðsstjóri hjá TDK Foil Iceland ehf og sem framkvæmdastjóri Skíðasambands Íslands um sex ára skeið.

Þórunn Sif hefur verið virkur þátttakandi í sveitarstjórnarmálum hjá Akureyrarbæ frá árinu 2014 sem m.a. varabæjarfulltrúi og nefndarmaður í íþróttaráði, frístundaráði og í stjórn Atvinnuþróunarfélags Eyjafjarðar um tíma. Hún var formaður Vetraríþróttamiðstöðvar Íslands 2014-2020, varamaður í Umhverfis- og mannvirkjaráði 2018-2020 og er formaður stjórnar Fallorku.

Þórunn Sif lauk diplomanámi í rekstrarstjórnun frá Háskólanum á Akureyri árið 2001 og diplomanámi í mannauðsstjórnun og leiðtogafærni frá Háskólanum í Reykjavík árið 2016 auk fjölda námskeiða.

Þórunn Sif er gift Tómasi Inga Jónssyni, umsjónarmanni fasteigna og hefur búið á Akureyri sl. fjóra áratugi.

Umsækjendur um stöðu sveitarstjóra Svalbarðsstrandarhrepps:

Ásta F. Flosadóttir Skólastjóri
Einar Kristján Jónsson Sveitarstjóri
Glúmur Baldvinsson Sjálfstætt starfandi
Gunnsteinn Björnsson Sjálfstætt starfandi
Hildur Axelsdóttir Kjördæmisfulltrúi
Ingvi Már Guðnason Verkstjóri
Jónas Egilsson Sveitarstjóri
Katrín Sigurjónsdóttir Sveitarstjóri
Sigurður Sveinn Nikulásson Sölustjóri
Snæbjörn Sigurðarson Verkefnastjórn
Þorsteinn Kristjánsson Sölumaður
Þórunn Sif Harðardóttir Verkefnastjóri

 


Athugasemdir

Nýjast