TaxiAk er ný leigubílastöð á Akureyri

Bílstjórar við bílaflotann. Tryggvi Kristjánsson, Þórarinn Steingrímsson, Snorri Jónsson og Jón Hafþ…
Bílstjórar við bílaflotann. Tryggvi Kristjánsson, Þórarinn Steingrímsson, Snorri Jónsson og Jón Hafþór Jónsson. Á myndina vantar Jón Atla Jóngeirsson.

„Við erum bara rétt að byrja, en fáum ágætis start þannig að mér finnst það lofa góðu um framhaldið,“ segir Snorri Jónsson einn þeirra sem standa að stofnun nýrrar leigubílastöðvar á Akureyri, TaxiAk. Bílstjórarnir eru fimm talsins og mun sá sjötti bætast við um áramót. Bílaflotinn saman stendur af fjórum fólksbílum og einum 8 manna bíl. Þjónustan stendur til boða allan sólarhringinn.

Snorri var áður um skamma hríð bílstjóri hjá BSO, „ég rétt náði þar inn á lokametrunum, en aðrir sem með mér eru í þessu hafa einnig starfað fyrir BSO og síðar Hreyfil og einn bílastjórann er með reynslu frá BSR. Við höfum allir reynslu af leigubílaakstri og hlökkum til að þjóna markaðnum á Akureyri,“ segir Snorri. „Við höfum því góða þekkingu á markaðnum og þjónustunni sem fólk þarf á að halda.“

Bregðumst við ákalli úr samfélaginu

„Við heyrðum ítrekað í sumar, bæði frá almenningi og fyrirtækjum á Akureyri, að fólk hefði áhuga á að sjá akureyska leigubílastöð. Það má eiginlega segja að það hafi komið ákall úr samfélaginu sem við ákváðum að bregðast við. Við ræddum þetta okkar á milli um tíma og í haust ákváðum við að láta verða af því og sjá hvort grundvöllur væri fyrir starfseminni. Maður veit aldrei hvort svona verkefni gangi nema maður reyni, en fyrstu viðbrögðin hafa verið jákvæð og við erum bjartsýn á framhaldið,“ segir Snorri spurður um tildrög þess að stöðin var opnuð.

Snorri Jónsson einn þeirra sem standa að  TaxiAk

 

Stundum mikið að gera, stundum minna

Þjónusta TaxaAk verður í boði allan sólarhringinn, alla daga vikunnar. „Við viljum vera til staðar þegar fólk þarf á okkur að halda, hvort sem það er um miðjan dag eða um hánótt,“ segir hann og bætir við að stundum sé mikið að gera í leigubílaakstri og inn á milli komi tímar þar sem minna er um að vera. „Það er oft ágætt að gera á þessum árstíma, á haustin og fram að áramótum. Þá dregur aðeins úr og það er rólegri tíð þessa vetramánuði í byrjun árs. Sumrin eru hins vegar jafnan mjög annasöm, þannig að þegar allt er tekið með í reikninginn er ágætis grundvöllur fyrir því að reka leigubílastöð í bænum.“

Eru að kynna þjónustuna

Snorri segir að fram undan sé að kynna starfsemin og láta bæjarbúa vita af þessum nýja valkosti. „Núna erum við að kynna starfsemina betur og munum auglýsa okkur á næstunni. Við viljum láta sem flesta vita af þessari nýju þjónustu. Við erum að þreifa okkur áfram, bara að taka fyrstu skrefin í þessum rekstri en eins og staðan er núna erum við bjartsýn og teljum að þetta fari vel af stað.“

Vefsíða fyrirtækisins, taxiak.is er að koma í loftið um þessar mundir. Þá er einnig hægt að hlaða niður appi og panta akstur í gegnum það. . Símanúmerið hjá nýju leigubílastöðinni er 461-1015.

Nýjast