Talsverðar framkvæmdir á Grenivík

Í stað gróðurbeðs sem var komið í nokkra órækt, hefur verið úbúinn snotur pallur við Grenivíkurskóla…
Í stað gróðurbeðs sem var komið í nokkra órækt, hefur verið úbúinn snotur pallur við Grenivíkurskóla, gegnt anddyri Íþróttamiðstöðvar. Pallurinn mun t.d. nýtast gestum sundlaugar á sumrin þegar vel viðrar. Jafnframt var sett upp nýtt handrið á vegginn fyrir ofan til að fyrirbyggja fallhættu. Mynd grenivik.is

Viðbygging við leikskólann Krummafót á Grenivík eru langt komin. Hún er Hún er nálægt 150 fermetrum að stærð og mun hýsa alla starfsmannaaðstöðu, stoðþjónustu, fundar- og samkomuaðstöðu.

Gamla viðbyggingin var færð til bráðabirgða en mun síðar hverfa á braut. Þetta mun gerbreyta vinnuaðstöðu og rýmka fyrir fjölgun barna næstu árin að því er fram kemur á vefsíðu Grýtubakkahrepps. Hönnun miðar við að hægt verði að byggja nýja deild fyrir börn framan á viðbygginguna þegar þörf verður á. Þannig gæti leikskólinn tekið við allt að 40 til 50 börnum, „vonandi sjáum við slíka tíma á komandi árum,“ segir á vefsíðunni.

Viðbygging við leikskólann Krummafót eru langt komin

Töluverðar framkvæmdir hafa verið á vegum sveitarfélagsins í ár. Lokið er við þriðja og síðasta áfanga á glugga- og útihurðaskiptum í Grenivíkurskóla. Það er afar mikilvægt fyrirbyggjandi viðhald. Einnig voru ljós í íþróttahúsi endurnýjuð á árinu sem bæði bætir lýsingu og sparar rafmagn. Unnið er að viðhaldi innandyra í skólanum einnig jafnt og þétt þessi árin.

Verið er að leggja kalt vatn að ferðaþjónustusvæði við Akurbakkaveg, þar er fyrsta húsið þegar risið.

Nýjast