Lögreglan á Norðurlandi eystra Óskar eftir fjármögnun 7 nýrra stöðugilda

Lögreglan á Norðurlandi eystra fer fram á fjármögnun fyrir sjö ný stöðugildi
Lögreglan á Norðurlandi eystra fer fram á fjármögnun fyrir sjö ný stöðugildi

Lögreglan á Norðurlandi eystra fer fram á fjármögnun fyrir sjö ný stöðugildi, þar af fimm til almennrar eflingar löggæslu og tvö vegna verkefna sem tengjast ofbeldi gegn börnum.

Embætti Lögreglustjórans á Norðurlandi eystra fagnar fyrirhugaðri eflingu löggæslu í fjárlagafrumvarpi 2027 en leggur áherslu á að fjárveitingar taki mið af verkefnaálagi á starfssvæðinu.

Embættið óskar eftir fjármögnun fyrir fimm ný stöðugildi lögreglumanna til að styrkja almenna löggæslu, rannsóknir, landamæraeftirlit og viðbrögð við skipulagðri brotastarfsemi. Kostnaður við það nemur um 110 milljónum króna á ári.

Jafnframt er óskað eftir 44 milljón króna til fjármögnunar tveggja stöðugilda vegna mála sem varða ofbeldi gegn börnum. Samtals nemur fjárþörfin því 154 milljónum króna.

Að mati embættisins eru framangreindar aðgerðir ekki aðeins æskilegar heldur nauðsynlegar til að tryggja að markmið stjórnvalda um öflugri löggæslu.

Nýjast