Hver styrkur skiptir okkur miklu máli

Gunnþór Hákonarson frá  Oddfellow, Erla Lind Friðriksdóttir teymisstjóri Aflsins, Erla Hrönn Hörpu U…
Gunnþór Hákonarson frá Oddfellow, Erla Lind Friðriksdóttir teymisstjóri Aflsins, Erla Hrönn Hörpu Unnsteinsdóttir framkvæmdastýra Aflsins, Einar Hjartarson, Oddfellow við afhendingu styrksins á dögunum.

Aflið, samtök fyrir þolendur ofbeldis hefur fengið nokkra styrki nú í aðdraganda jóla. Þar má nefna frá Oddfellowstúkinni Sjöfn, stúku nr. 2, frá Norðurorku og Coca Cola á Íslandi. Aflið veitir þolendur ofbeldis og aðstandendum þeirra ráðgjöf og stuðning.

Erla Hrönn Hörpu Unnsteinsdóttir framkvæmdastýra Aflsins segir ánægjulegt þegar styrkir berist, en þeir skipti miklu máli til að halda starfseminni gangandi. „Aflið er almannaheillafélag og er eingöngu rekið á styrkjum. Hver styrkur skiptir samtökin þess vegna miklu máli,“ segir hún að allir séu ánægðir með styrkveitingarnar.

Karlahópur eftir áramót

Erla Hrönn segir að um þessar mundir sé að hefjast vinna við tölfræðina fyrir árið 2023 og fjöldi viðtala hafi ekki enn verið tekin saman. „En við sjáum engu að síður að fjöldi nýrra skjólstæðingar hefur aukist frá því í fyrra og einnig að hópur okkar skjólstæðinga er fjölbreyttari en áður. „Það hafa fleiri karlmenn sótt þjónustu Aflsins á liðnu ári og við bjóðum upp á námskeið fyrir karla nú í komandi janúarmánuði. Slíkt námskeið hefur ekki verið haldið frá árinu 2019 eða í fjögur ár. Annað sem við tökum líka eftir er að fleiri aðstandendur hafa leitað ráðgjafar hjá okkur en áður og einnig skjólstæðingar af erlendum uppruna,“ segir hún.

Skjólstæðingar dreifðir um allt land

Eftir sem áður eru flestir skjólstæðingar Aflsins konur líkt og verið hefur undanfarin ár. „Það er líka áhugavert að sjá að skjólstæðingahópur okkar er mjög dreifður um landið. Það fjölgar alltaf í þeim hópi sem sækir fjarþjónustu okkar sem og einnig þeim sem koma í viðtöl á starfsstöðvum okkar utan Akureyrar. Við teljum því mikilvægt að halda áfram á þeirri braut að fjölga starfsstöðvum þar sem möguleiki er á að bjóða þjónustu á staðnum, en flestir kjósa slíka þjónustu fram yfir fjarþjónustu. Við viljum veita öllum þeim einstaklingum sem kjósa þjónustu óháð búsetu,“ segir Erla Hrönn.

Fyrir þá sem sjá sér fært að styrkja Aflið eru reikningsupplýsingar hér:
0566-26-002150 kt. 690702-2150


Athugasemdir

Nýjast