Farþegafjölgun hjá Sæfara á liðnu sumri..... um einn

Grímseyjarferjan góða
Grímseyjarferjan góða

Farþegum með Grímseyjarferjunni Sæfara fjölgaði milli ára samkvæmt nýjum tölum fyrir tímabilið 1. maí til 1. september. Sumarið 2025 flutti ferjan 6.028 farþega en sumarið 2026 voru farþegarnir 6.029. Það fjölgaði um einn farþega á tímabilinu.

Forsvarsmenn ferjunnar taka tölunum með léttum húmor og segjast ekki geta annað en verið sáttir þar sem um aukningu sé að ræða hvað farþega varðar.

Þrátt fyrir að fjölgunin sé hófleg sé hún engu að síður jákvæð og markmiðið nú að halda áfram uppbyggingu og gera enn betur næsta sumar. „Nú er bara að bretta upp ermar og skálmar og gera enn betur næsta sumar, ekkert annað í boði,“ segir á facebook síðu Grímseyjarferjunnar.

Nýjast