Færeyska tónlistarkonan Guðrið Hansdóttir er hér á landi í október og heldur níu tónleika í hringferð um landið dagana 20.–29. október. Tilefnið er útgáfa sjöundu hljóðversplötu hennar, Sýrublað, sem kom út í vor og hlaut góðar viðtökur. Platan er unnin af Høgna Lisberg.
Hún sveiflast milli lágstemmds þjóðlagapopps og draumkennds indípopps, sem Gudrid er þekkt fyrir. Sjálf segir hún tónlistina vera „eins og að bíta í súrublað – ferska, stökka, græna og örlítið súra“.
Meðal áhrifavalda hennar eru Joni Mitchell, Kate Bush og Aldous Harding.
Gudrid hefur verið áberandi í færeysku og norrænu tónlistarlífi frá aldamótum, bæði ein síns liðs og í rafpopp-dúettinum BYRTA. Hún hefur komið fram á hátíðum á borð við Iceland Airwaves, SXSW, SPOT og By:larm. Plata hennar, Gult myrkur, var valin plata ársins á færeysku tónlistarverðlaununum 2022
Guðríd verður með tónleika á Græna n.k fimmtudag og hefjast þeir kl 21.00, miðasala er á grænihatturinn.is og verð miða er kr. 5990
Með henni á sviðinu verða Høgni Lisberg, Vinjar Egilsnes Petersen og Ólavur Gaard, á gítar, trommur og hljómborð.
Með þvi að smella á hlekkinn hér fyrir neðan má heyra Gudríd flytja lagið Pegasus af plötunni Painted Fire sem kom út 2026