Eimur stýrir nýju Evrópuverkefni – lífgas í Húnaþingi vestra í brennidepli

Eimur stýrir í fyrsta sinn evrópsku samstarfsverkefni eftir að gengið var frá styrksamningi við Evrópusambandið um verkefnið DEPLOY-PED. Styrkurinn nemur tæpum 700 milljónum króna og verkefnið stendur yfir í fjögur ár frá janúar 2027.

Lífgas úr kúamykju

Í Húnaþingi vestra verður kannað hvernig kúabændur geta sameinast um uppbyggingu lífgasstöðvar sem breytir mykju í metan og áburð. Orkusamfélag Steingerðar vinnur verkefnið í samstarfi við Eim og RARIK tekur þátt sem dreifiveita.

Markmiðið er að nýta auðlindir búanna betur og draga úr notkun innfluttrar dísilolíu og tilbúins áburðar. Ekki hefur verið ákveðið hvar stöðin yrði staðsett, en á verkefnistímanum verður unnið að tæknilegri útfærslu, rekstrarlíkani og fjármögnun.

Íslensku þátttakendurnir þrír fá rúmar 1,3 milljónir evra í sinn hlut úr styrknum.

Samstarf við Evrópu og Kanada

Alls taka 20 samstarfsaðilar í tíu löndum þátt í DEPLOY-PED. Sex sýnisverkefni verða unnin í Evrópu og Kanada, þar á meðal í Húnaþingi vestra.

Verkefnið miðar að því að þróa orkujákvæð héruð, þar sem framleidd er meiri endurnýjanleg orka en samfélagið notar yfir árið.

Hildur Arna Magnúsdóttir, framkvæmdastjóri Eims, segir verkefnið skapa tækifæri til að efla þekkingu, styrkja atvinnulíf og þróa sjálfbærar lausnir sem nýtast íslenskum sveitarfélögum og fyrirtækjum.

Nýjast