Deilileiga fyrir rafhlaupahjól á leið til Húsavíkur

Hopp ehf. hefur starfrækt rafskútuleigu á Akureyri með góðum árangri í rúmt ár. Nú gæti slík deilile…
Hopp ehf. hefur starfrækt rafskútuleigu á Akureyri með góðum árangri í rúmt ár. Nú gæti slík deilileiga verið á leið til Húsavíkur.

Byggðarráð Norðurþings tók í dag fyrir erindi frá Hopp ehf. sem sérhæfir sig í leigu á svo kölluðum rafhlaupahjólum.

Í erindinu veltir fyrirtækið upp þeim möguleika  að starfrækja slíka leiguþjónustu á Húsavík og óskar eftir að gerður verði þjónustusamningur milli Norðurþings og sérleyfishafa um leyfi til reksturs og þróunnar á deilileigu fyrir rafhlaupahjól á svæðinu.  

„Efni þessa erindis er að veitt sé leyfi fyrir opnun og rekstri á stöðvalausa deilileigu fyrir rafhlaupahjól á Húsavík. Þjónustan væri rekin sem sérleyfi (e. franchise) undir formerkjum Hopp. Sérleyfishafinn, BÍB fasteignir ehf., verður eigandi að rafhlaupahjólunum og verður starfsemin rekin með hugbúnaði og aðstoð frá Hopp ehf.,“ segir m.a. í erindinu.

Byggðarráð samþykkti að Norðurþing geri þjónustusamning og samstarfsyfirlýsingu við Hopp ehf. um deilileigu fyrir rafskútur á Húsavík.

Starfandi sveitarstjóra hefur verið falið að undirrita fyrirliggjandi samninga og birta samstarfsyfirlýsingu á vefsíðu Norðurþings.

Málinu hefur verið vísað til kynningar í skipulags- og framkvæmdaráði.

 

 


Athugasemdir

Nýjast