Hleypur með ólympíueldinn á Norðurpólnum

Steingrímur Jónsson prófessor við auðlindadeild Háskólans á Akureyri og sérfræðingur við Hafrannsóknastofnun verður fulltrúi íslenskra vísindamanna á Norðurpólnum.

Íslenska utanríkisráðuneytið var beðið af rússneskum yfirvöldum að tilnefna vísindamann til þátttöku í ferð með ísbrjótnum 50 Let Pobedy, sem sigla mun með ólympíueldinn frá Múrmansk í Rússlandi á Norðurpólinn. Aðspurður að tilkomu hans í ferðinni segir Steingrímur „það var haft samband við mig og spurt hvort ég hefði áhuga á að fara og ég ákvað að slá til.“

Um borð verða einnig vísindamenn frá hinum Norðurskautsríkjunum ásamt fréttamönnum og ljósmyndurum. Markmiðið með ferðinni er að vekja athygli á vetrarólympíuleikunum sem fram fara í febrúar 2014 í borginni Sochi í Rússlandi. „Ætlunin er að hlaupið verði með ólympíueldinn á pólnum og það kemur minn hlut að hlaupa með hann einhvern spöl“ segir Steingrímur og vonar jafnframt að ferðin nýtist einnig til að vekja athygli á málefnum norðurslóða.

Ísbrjóturinn 50 Let Pobedy er kjarnorkuknúinn og mun vera sá stærsti í heimi. Lagt verður af stað frá Múrmansk þriðjudaginn 15. október og mun siglingin á pólinn taka 5-6 daga en fjarlægðin er um 2.400 km og munu ferðalangar mæta hafísþekjunni þegar komið er á 84°N. Á bakaleiðinni mun verða komið við á Franz Josefs Landi og eyjaklasinn og lífríkið skoðað og er áætluð koma til Múrmansk 29.-30. október.

Nýjast