Djazz í Akureyrarkirkju

Óskar Guðjónsson saxófónleikari og Skúli Sverrisson bassaleikari halda tónleika í Akureyrarkirkju í kvöld kl. 20:00. Skúli og Óskar hafa starfað saman í 15 ár og gefið út tvær plötur, Eftir þögn og The Box Tree, sem báðar unnu til íslensku tónlistaverðlaunanna sem plata ársins í flokki jasstónlistar. Skúli hefur aðallega starfað í Bandaríkjunum með þekktum listamönnun eins og Allan Holdsworth, Laurie Anderson, David Sylvian og Blonde Redhead.

Óskar er einn af fremstu jasstónlistamönnum landsins og tónlist hans
hefur vakið athygli víða um heim. Hann hefur leikið med fjölda hljómsveita
en helst má nefna ADHD og Mezzoforte. Tónleikarnir eru haldnir í samstarfi við Listvinafélag Akureyrarkirkju

Nýjast