Brúin fjölskyldusetur Auðveldar börnum og fjölskyldum leið um þjónustukerfið

Brúin fjölskyldusetur, samstarfsverkefni 11 sveitarfélaga á Norðurlandi eystra, hóf formlega starfsemi í vor. Markmið Brúarinnar er að einfalda leið barna og fjölskyldna í gegnum þjónustukerfið með því að tengja saman þá þjónustu sem þau þurfa á að halda.

Hugmyndin að Brúnni hefur verið í þróun frá árinu 2022 og byggir meðal annars á reynslu málstjóra sem starfa með börnum og fjölskyldum. Þeir hjálpa fjölskyldum að rata í gegnum ólík þjónustukerfi og samhæfa aðkomu þeirra sem koma að málum þeirra.

„Við viljum mæta börnum og fjölskyldum þar sem þau eru stödd í stað þess að reyna að laga þau að úrræðum sem þegar eru til staðar. Smíðum hugmynd út frá þörf, en ekki öfugt,“ segir Halldóra K. Hauksdóttir, forstöðumaður félagsþjónustu Akureyrarbæjar á vefsíðu bæjarins þar sem þetta kemur fram.

Fjölbreytt þjónusta mætir ólíkum þörfum

Hún segir mikilvægt að geta boðið upp á fjölbreytta þjónustu til að mæta ólíkum þörfum. Í Brúnni verði meðal annars boðið upp á fjölskyldumeðferð, einstaklingsviðtöl, pararáðgjöf, námskeið og fræðslu. Einnig verði lögð áhersla á forvarnir og snemmtæka íhlutun í samstarfi við viðeigandi aðila.

Brúin byggir á fjölskyldumiðaðri nálgun og heildarsýn. Í stað þess að horfa eingöngu á einstök vandamál er litið til aðstæðna fjölskyldunnar í heild og þess hvað hún þarf til að komast áfram.

„Í stað þess að spyrja: Hvað er að hjá þessu barni? viljum við spyrja: Hvað hefur þessi fjölskylda gengið í gegnum – og hvað þarf til þess að hún komist áfram?“

Nýjast