Bangaspítalar draga úr ótta barna við heimsóknir á spítala og heilsugæslur  Hlusta

Með því að leyfa börnum að koma með bangsana sína eða dúkkur í „skoðun“ fá þau tækifæri til að kynna…
Með því að leyfa börnum að koma með bangsana sína eða dúkkur í „skoðun“ fá þau tækifæri til að kynnast umhverfi heilbrigðisstarfsfólks

Bangsaspítalar hafa um árabil verið viðurkennd aðferð til að fræða börn um heilbrigðisþjónustu á leikrænan hátt. Þeir hjálpa börnum að kynnast starfi heilbrigðisstarfsfólks, draga úr ótta við heimsóknir á heilsugæslu og sjúkrahús og stuðla að jákvæðu viðhorfi til heilsu og umönnunar frá unga aldri. 

Með því að leyfa börnum að koma með bangsana sína eða dúkkur í „skoðun“ fá þau tækifæri til að kynnast umhverfi heilbrigðisstarfsfólks, læra um heilsu og veikindi og vinna úr hugsanlegum ótta við heimsóknir á heilsugæslu eða sjúkrahús. Slík verkefni stuðla að auknu öryggi barna og skapa ánægjulega upplifun fyrir alla fjölskylduna. 

Hjá Heilbrigðisstofnun Norðurlands (HSN) hefur við ýmis tækifæri verið haldinn bangsaspítali þar sem börn fá að stíga í hlutverk aðstandenda og sjá hvernig tekið er á móti „veikum“ eða „slösuðum“ böngsum. Verkefnið hefur ávallt notið mikilla vinsælda og styrkt tengsl stofnunarinnar við nærsamfélagið. 

Bangsaspítali á heilsugæslu HSN var haldinn á Blönduósi í fyrsta sinn þar sem tekið var á móti um 70 slösuðum og veikum böngsum og dúkkum. Þá tóku læknanemar í Lýðheilsufélagi læknanema á móti um 200 böngsum á HSN á Akureyri um helgina. Sjúklingarnir fengu ýmsa meðferð, sár voru hreinsuð og plástruð, hjörtu hlustuð, hitinn mældur og önnur nauðsynleg umönnun veitt af metnaði og gleði. Sköpunarkraftur barnanna fékk að njóta sín og tóku þau virkan þátt í aðhlynningu bangsa sinna.

Bangsaspítalinn vakti mikla lukku meðal barna og fjölskyldna og starfsfólk HSN hafði ekki síður gaman af því að taka á móti öllum bangsasjúklingunum. HSN þakkar öllum þeim sem komu í heimsókn og hlakkar til að taka aftur á móti veikum og slösuðum böngsum á næsta ári.  

Heimasíða HSN sagði frá

Nýjast