Akureyringar senda kveðju til íbúa Blönduóss og Húnabyggðar

Gamla kirkjan á Blönduósi/Mynd Hörður Geirsson
Gamla kirkjan á Blönduósi/Mynd Hörður Geirsson

Bæjarstjórn Akureyrar  hefur sent samúðarkveðjur til allra þeirra sem eiga um sárt að binda eftir þá voveiflegu atburði sem áttu sér stað á Blönduósi í gærmorgun.

"Engin orð fá lýst sorg okkar og vanmætti gagnvart svo skelfilegum atburði. Við erum öll harmi slegin en við erum jafnframt ein stór fjölskylda og stöndum þétt við bakið á því fólki sem á nú um sárt að binda í skugga þessa harmleiks. Við hugsum með hluttekningu og hlýhug til vina okkar á Blönduósi og óskum þess af heilum hug og hjarta að allar góðar vættir verði þeim til hughreystingar og blessunar, styrki og styðji á erfiðum tímum," segir í kveðju frá Bæjarstjórn Akureyrar.


Athugasemdir

Nýjast