Það er enginn leikur án dómara

Frá vinstri Eðvarð Þór Eðvarðsson, Þóroddur Hjaltalín greinarhöfundur og Stefán Aðalsteinsson     My…
Frá vinstri Eðvarð Þór Eðvarðsson, Þóroddur Hjaltalín greinarhöfundur og Stefán Aðalsteinsson Mynd aðsend

Þann 09.12.22 hófst Kjarnafæðimótið í knattspyrnu. Mótið er mikilvægur þáttur í undirbúningi liða á Norður og Austurlandi ár hvert. Leikirnir fara fram á Húsavík, Boganum og á Greifavellinum.

Knattspyrnudómarafélag Norðurlands (KDN) hefur haldið utan um mótið um árabil. Svona æfingamót er ekki síður mikilvæg í undirbúningi dómara fyrir komandi tímabil. Dómarar þurfa á leikæfingu að halda engu síður en leikmenn. Það er mikil vinna að halda utan um svona mót og margir leikir sem þarf að manna með dómurum, enginn dómari – enginn leikur.

KDN hefur staðið sig nokkuð vel í nýliðun dómara en betur má ef duga skal. Þessi árstími er gríðarlega mikilvægur því best er fyrir nýja dómara að byrja á þessum undirbúningsmótum svo þeir komi betur tilbúnir þegar sumarið brestur á. KDN er mjög virkt í að halda utan um dómara á svæðinu og aðstoðar eins vel og hægt er. Einnig er mikið og gott samstarf við félögin á svæðinu.

Núna í febrúar hefst svo deildarbikarinn þannig að mjög margir leikir eru framundan. Hvet alla sem hafa áhuga og vilja prófa þetta frábæra starf að setja sig í samband við KDN eða beint við mig.

Með knattspyrnukveðju.
Þóroddur Hjaltalín
Starfsmaður dómaramála KSÍ

 


Athugasemdir

Nýjast