Mikil umferð um Akureyrarflugvöll s.l. daga
25. apríl, 2024 - 18:04
Gunnar Níelsson - gunnar@vikubladid.is
Mikil umferð hefur verið um Akureyrarflugvöll síðustu daga, áætlunarflug, sjúkraflug, einkaþotur og töluverð þyrluumferð.
Í gærmorgun var beint flug frá Akureyri til Prag á vegum ferðaskrifstofunnar Aventura Nú í morgun fóru tvær vélar frá Akureyri til Prag, en þær voru á vegum Kompaní ferða.
Í dag hafa á sjötta hundrað farþega farið um flugstöðina.
Frá þessu segir á Facebooksíðu Akureyrarflugvallar
Nýjast
-
Hraðamælingar og þau nelgdu.
- 09.05
Lögreglan á Norðurlandi eystra hvetur þá sem ökumenn sem eiga það eftir, að huga að dekkjaskiptum, að skipta út nagladekkjunum sem fyrst! ❌❌ Í ljósi veðurspár næstu daga er algjör óþarfi að vera á nagladekkjum núna. Við höfum skilning á því að það er háannatími hjá dekkjaverkstæðum á svæðinu um þessar mundir, en ítrekum þó hér með að ökumenn beri ábyrgð á því hvernig bifreið sem þeir aka sé útbúin Með hækkandi sól hefur talsvert borið á hraðakstri á svæðinu og því vill lögreglan beina þeim tilmælum til ökumanna að þeir flýti sér hægt. Nú er mikið af nýjum vegfarendum í umferðinni, m.a. á reiðhjólum og bifhjólum, og því afar mikilvægt að sýna aðgæslu. Sérstaklega er viðbúið að reiðhjólamenn verði áberandi í umdæminu næstu vikurnarnar og mánuði. Sem fyrr er nauðsynlegt að allir í umferðinni sýni tillitssemi því þá gengur allt betur og öruggar fyrir sig. Þá upplýsist það einnig hér með að lögreglumenn hjá embættinu munu næstu daga, sem og í allt sumar, halda uppi öflugu hraðaeftirliti hvort sem það er innanbæjar eða utan þéttbýlis. 🚨🚔 Góða helgi ☀️ -
Bóngóður sjálfboðaliði heiðraður
- 09.05
Gunnar Frímannsson sjálfboðaliði Eyjafjarðardeildar fékk heiðursviðurkenningu sjálfboðaliða á aðalfundi Rauða krossins á Íslandi fyrr í þessum mánuði. „Gunnar er jákvæður, traustur og afar bóngóður sjálfboðaliði,“ segir í umsögn um hann. -
Bjarmahlíð, þjónustumiðstöð hefur verið starfrækt í 5 ár
- 09.05
„Bjarmahlíð er rekin með styrkjum en óskastaðan er sú að komast á fjárlög en þannig mætti nýta tíma sem fer í að eltast við peninga í reksturinn til að auka þjónustuna enn frekar,“ segir Kristín Snorradóttir teymisstjóri hjá Bjarmahlíð, þolendamiðstöð á Akureyri. Fimm ár eru um þessar mundir frá því starfsemin hófst og var tímamótanna minnst með afmælishófi á Múlabergi í gær, miðvikudag. -
Borgarhólsskóli fór með sigur af hólmi í Fiðringi
- 09.05
Fiðringur á Norðurlandi var haldinn í Hofi þriðja sinn í gærkvöldi, 8. maí. Tíu skólar af Norðurlandi tóku þátt í ár og sýndu afrakstur vinnu sinnar -
„Sjávarútvegurinn er á undan stjórnvöldum í innleiðingu umhverfisvænnar tækni“
- 08.05
Hákon Þröstur Guðmundsson útgerðarstjóri Samherja var endurkjörinn í stjórn Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi ( SFS) á ársfundi samtakanna sem haldinn var 3. mai s.l. Hákon Þröstur þekkir vel til starfsemi SFS, var í stjórn 2019 – 2020 og samfellt frá 2022. Hann er menntaður skipstjórnarmaður og var í liðlega tvo áratugi skipstjóri á skipum Samherja, síðustu sautján árin hefur hann hins vegar starfað á útgerðarsviði félagsins. -
Þjónustunefnd AA leitar að framtíðarhúsnæði
- 08.05
Brýnt er að ráðast í gagngerar endurbætur á húsinu að Strandgötu 21 þar sem AA-samtökin á Akureyri hafa haft aðstöðu sína um langt árabil. -
Hitaveitur þarfnast athygli
- 08.05
Norðurorka rekur hitaveitu í Ólafsfirði og Reykjaveitu í Fnjóskadal auk hitaveitu á Akureyri og nágrannabyggðum. Þær veitur þarfnast athygli að því er fram kom í máli Eyþórs Björnsson forstjóra Norðurorku á aðalfundi félagsins. -
Hængsmenn afhentu bíl og héldu Hængsmót
- 08.05
Lionsklúbburinn Hængur á Akureyri hélt um liðna helgi árlegt Hængsmót fyrir fatlaða í 41. Skipti. Mótið fór fram í Íþróttahöllinni og í ár var keppt í boccia en mótið var auk þess Íslandsmót í greininni. -
Sýning ársins 2024 opnuð á Sigurhæðum
- 08.05
Á mæðradaginn, sunnudaginn 12. maí klukkan 13 opnar Sýning ársins 2024 í Menningarhúsi í Sigurhæðum á Akureyri. Lilja Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra, flytur ávarp á opnuninni. Húsið verður opið til klukkan 17 þennan sunnudag og það verður líka hægt að líta inn á vinnustofur listafólks, hönnuða og hugsuða á annarri hæð Sigurhæða.
Athugasemdir