    <language>is</language>
Pistlar og aðsendar greinar | Vikublaðið
Lokaorðið - Ekki reyna að móðga mig.
Allt mitt líf er á misskilningi byggt. Ég slæ þessu fram því ég er heyrnarskert. Stundum er ekki heill þráður í tilsvörum mínum. Þeir sem þekkja mig vita það. Þeir sem þekkja mig ekki geta lent í vandræðum þegar þeir fara að spjalla við mig. Ég svara kannski einhverju út í bláinn eða þreyti þá með viðstöðulausu tali...þá þarf ég ekki að misskilja það sem þeir segja.]]></description>
NorðurHjálp hefur úthlutað bónuskortum fyrir 20 milljónir króna á árinu 
NorðurHjálp hefur það sem af er ári veitt einstaklingum og fjölskyldum í neyð bónuskort til matarinnkaupa fyrir yfir 20 milljónir króna. Þá hefur fjöldi fólks fengið aðstoð í formi húsgagna, fatnaðar og matvæla úr matarhorni NorðurHjálpar.
Verkfærasalan styður verklega kennslu í tæknifræði
Tæknifræðideild HA/HR fékk á dögunum handverkfæri að gjöf frá Verkfærasölunni. Verkfærin munu nýtast í nýrri verklegri aðstöðu deildarinnar við Háskólann á Akureyri og styðja við verklega kennslu og verkefnavinnu nemenda.]]></description>
Matargjafir Akureyri og nágrenni - Jólasöfnun 2026
Sigrún Steinarsdóttir Ellertsen forsvarskona Matargjafa á Akureyri birtir i dag á Fbvegg hennar  ákall til fólks um stuðning við jólasöfnun Matargjafa. Sigrún gaf góðfúslegt samþykkir fyrir birtingu hennar skrifa:.
Gæði hjúkrunar­heimila eru mæli­kvarði á vel­megun
Þegar foreldri eða maki flytur á hjúkrunarheimili breytist margt í lífi fjölskyldunnar. Aðstandendur þurfa að geta treyst því að manneskjan sem þeim þykir vænt um fái góða umönnun. Sá sem flytur þarf að finna að hlustað sé á hann, að óskir hans skipti máli og að hann geti áfram haft áhrif á eigið líf.]]></description>
Endurhæfum Kristnes
Nýlega var kjördæmavika og við þingmenn Norðausturkjördæmis ferðuðumst saman um kjördæmið, hittum sveitarstjórnarfólk, fyrirtæki, forstöðumenn hinna ýmsu stofnana og áttum mörg góð samtöl um þau verkefni sem helst brenna á íbúum. Einn af rauðu þráðunum í þessum samtölum, sérstaklega á Norðurlandi eystra, var staðan á Kristnesi. Skilaboðin voru skýr. Það bráðvantar framtíðarsýn fyrir endurhæfingarþjónustuna og það þarf að taka ákvarðanir.]]></description>
Lokaorðið - Ertu iðnaðarmaður ?
Í síðustu viku þurfti ég að skottast suður til Reykjavíkur í mörg mismunandi verkefni. Allt frá því að láta sérfræðing skoða mig, heimsækja vini og vandamenn og ekki síst að hitta börn mín og barnabörn sem búa á Suðurlandinu. Ég fór vel undirbúinn og skipulagði ferðina þannig að tíminn myndi nýtast sem best.]]></description>
Hugbúnaður til heilsu 
Tólf stúdentar á öðru ári í hjúkrunarfræði við Háskólann á Akureyri lögðu land undir fót á dögunum til að taka þátt í alþjóðlegu námskeiði í Lissabon. Námskeiðið var dagana 28. september til 2. október og ásamt íslensku stúdentunum voru á því hjúkrunarnemar frá Portúgal og Noregi. Með í för voru einnig Þórhalla Sigurðardóttir, Anna Karen Sigurjónsdóttir og Kolbrún Sigurlásdóttir, sem allar starfa við Hjúkrunarfræðideild, auk Valgeirs Árnasonar kerfisstjóra.]]></description>
Tvær þjóðir í sama landi?
Nýafstaðin þjóðaratkvæðagreiðsla staðfesti nokkuð mun stærra en hver afstaða þjóðarinnar sé til ESB. Hún afhjúpaði efnahagslega og samfélagslega gjá sem hefur smám saman myndast milli höfuðborgarinnar og annarra landshluta. Niðurstaða kosninganna eftir kjördæmum leiddi þetta bersýnilega í ljós.]]></description>
Hver fær reikninginn?
Í desember 2023 sagði Kristrún Frostadóttir, þá formaður Samfylkingarinnar: „Nú verður að milda höggið fyrir heimilin.“ Hún gagnrýndi að dregið væri úr stuðningi við skuldsett heimili og leigjendur á tímum hárra vaxta og verðbólgu. Vaxtabótakerfið næði einmitt til „tekjulægsta fólksins með þyngstu greiðslubyrðina“.]]></description>
Hvað gerðist áður en hjúkrunarheimilið varð lausnin?
Umfjöllun Kveiks um lyfjanotkun á hjúkrunarheimilum hefur skiljanlega vakið hörð viðbrögð. Hafandi bæði menntun sem og margra ára reynslu af öldrunarþjónustu og tek ég því nærri mér þegar fólk missir rödd sína, sjálfræði og þátttöku í eigin lífi. Ég hef fylgst vel með umræðunni undanfarið, sem hefur einkum snúist um það sem gerist inni á hjúkrunarheimilunum: lyfjanotkun, mönnun, fjármagn, faglega ábyrgð, eftirlit og rekstrarform heimilanna.]]></description>
Uppbyggingarsjóður: Oft fyrsta Já-ið sem kemur góðum hugmyndum af stað
Góð verkefni þurfa ekki alltaf að byrja á stórum fjárhæðum. Stundum þarf fyrst og fremst einhvern sem trúir á hugmyndina, gefur henni byr undir báða vængi og skapar þér sem frumkvöðli svigrúm til að taka næsta skref. Þar hafa Uppbyggingarsjóður Norðurlands eystra, auk atvinnuráðgjafa SSNE, gegnt mikilvægu hlutverki um árabil. Þetta höfum við upplifað, bæði sem styrkþegar áður og nú sem starfsfólk SSNE, þar sem við sjáum heildarmynd áhrifanna raungerast.]]></description>
Sprellmótið — áratuga gömul hefð sem sameinar HA-inga
Búningar, þrautir, hæfileikakeppni og heilbrigður keppnisandi einkenna Sprellmótið, einn stærsta viðburð skólaársins hjá Stúdentafélagi Háskólans á Akureyri (SHA). Á bak við sprellið býr þó enn meira. Viðburðurinn á sér áratuga sögu við HA og hefur mikilvægu hlutverki að gegna við að tengja stúdenta saman og styrkja námssamfélagið.]]></description>
Lokaorðið - Gamla góða Ísland
Fyrir síðari heimsstyrjöld var Ísland eitt fátækasta ríki Evrópu. Fólk bjó við allt aðrar aðstæður og kjör en við þekkjum í dag. Í dag er Ísland meðal ríkustu þjóða heims. Í alþjóðlegum samanburði þegar hagsæld og almenn lífsgæði þjóða eru borin saman er Ísland iðulega í efstu sætum, ásamt hinum Norrænu ríkjunum. Þetta eru samfélög sem þekkt eru fyrir mikil lífsgæði, jafnrétti, hagsæld og öflugt velferðarkerfi.]]></description>
 Mildum höggið
Við í Framsókn styðjum markmiðið um hallalaus fjárlög, en það má ekki vera sama hvað það kostar. Fjárlögin þurfa að byggjast á raunhæfum forsendum og meta þarf hvað leiðin að hallalausum ríkisrekstri þýðir fyrir fjölskyldur í landinu.]]></description>
Við þráum öruggt heimili -  Bréf frá Rafa
Vefnum barst  fyrir skömmu skilaboð frá konu sem býr  í Rafa á Gaza,  Doaà Youssef, hún er gift þriggja barna móðir.   Skrif hennar  eru hér  fyrir neðan.
Til allra á Íslandi sem heyra rödd okkar – vinsamlegast hlustið á okkur. Við erum fimm manna fjölskylda – móðir, faðir og þrjú börn. Við búum í litlu tjaldi sem er allt of þröngt fyrir okkur, en þrátt fyrir það reynum við að gera það að skjóli sem geti verndað börnin okkar og veitt þeim örlitla tilfinningu fyrir öryggi.]]></description>
Öflugt atvinnulíf þarf gott aðgengi að lóðum
Meirihluti Framsóknar, Sjálfstæðisflokks og L-lista lagði ríka áherslu á atvinnumál í málefnasamningi sínum og hluti af því er að tryggja nægt framboð atvinnulóða.]]></description>
Þór og KA og ÞórKA
Í sumar hafa öll þrjú knattspyrnufélög bæjarins verið í efstu deild, Þór og KA hjá körlum og Þór/KA hjá konunum.]]></description>
Lokaorðið - Val mitt við lífslok
Um daginn barst mér í hendur bæklingur með þessu heiti. Bæklingur þessi er gefinn út af Ellimálanefnd þjóðkirkjunnar, Kærleiksþjónustusviði Biskupsstofu í Reykjavík árið 2023. Þetta er fróðlegur bæklingur og megin tilgangur hans er ,,að styðja fólk við að ákveða hvernig það óskar að hafa útför sína og annað sem tengist lífslokum þess” eins og segir á fyrstu síðu.]]></description>
Skólastarfið
Á Akureyri eru starfandi 7 grunnskólar og þar til viðbótar eru skólar í Hrísey og Grímsey að ógleymdum gullmola Akureyrar, Hlíðarskóla. Í þessum skólum er sífellt verið að vinna að verkefnum sem efla nemendur í alls kyns hæfni. Þeir nemendur sem eru góðir í stærðfræði fá víða tækifæri til að aðstoða aðra nemendur og verða þá um leið betri í stærðfræði. Þegar nemendur aðstoða hvern annan þá verða þeir ekki bara betri í viðkomandi fagi heldur efla þeir margt annað sem erfitt er að mæla, svo sem samvinnu, forystuhlutverk, umhyggju, umburðarlyndi og fleira.]]></description>