Bók fyrir fólk af erlendum uppruna

    kristingu fös 17.mar
    Birtir af degi, er léttlestrarbók fyrir fólk af erlendum uppruna, sem er búið með grunninn í íslensku. Bókin samanstendur af 12 stuttum, skemmtilegum og sjálfstæðum sögum úr ýmsum áttum. Fólk lærir nýja og spennandi hluti, hlutir öðlast líf, við skyggnumst inn í hugarheim dýranna og margt fleira.

    Eftir ábendingar sérkennara, textahöfunda og konu af erlendum uppruna eru erfið orð og orðasambönd útskýrð með tilvísunum. Auk þess er ein handteiknuð mynd með hverri sögu, sem styður við tilvísanirnar. Allt þetta léttir fólki lesturinn og hjálpar því að skilja betur íslenskuna.

    Bókin kostar 3.600 kr.

    Tekið er við pöntunum: bookskb20@gmail.com, við sendum hvert á land sem er.

    www.facebook.com/Bók-fyrir-fólk-af-erlendum-uppruna-696197564146094


    Smelltu á myndirnar til að sjá stærri útgáfu