Eldri fréttir
Garðyrkjufélag Snæfellsness stofnað

S.l. miðvikudag var haldinn stofnfundur Garðyrkjufélags Snæfellsness á Ráðhúsloftinu í Stykkishólmi.  Formaður var kosinn Anna Melsteð, meðstjórnendur Guðrún Hauksdóttir, Magðalena Hinriksdóttir, Kolbrún Jónsdóttir og Sesselja Pálsdóttir.  Vilhjálmur Lúðvíksson formaður Garðyrkjufélags Íslands kynnti félagið og að því loknu kom Jón Guðmundsson garðyrkjumaður og fræddi fundargesti ítarlega um það hvernig koma mætti ávaxtatrjám til að vaxa og bera ávexti utandyra. 

Nánar...


Þessi vefur er prófaður og vottaður
samkvæmt alþjóðlegum stöðlum.

Erlendar fréttir
Borði

Leiðbeiningar

Innsending auglýsinga og annars efnis í vikublaðið

Auglýsingar og annað efni þarf að berast fyrir klukkan 18 á þriðjudögum í prentútgáfu blaðsins

Þeir sem senda inn Word skjöl eru vinsamlega beðnir að setja ekki myndefni inn í skjölin heldur senda sér og í sem bestri upplausn eigi blaðið að sjá um uppsetningu. Einnig er mikilvægt er að í tölvupóstinum komi fram hver er greiðandi og kennitala.

Vinsamlega athugið að hægt er að panta auglýsingu hér beint á vefnum með því að fylla út eyðublað sem hægt er að nálgast hér

Einnig þarf að koma fram höfundur greina og ljósmyndari, sé um ljósmyndir að ræða. Mikilvægt er einnig að skrifa fullt nafn þeirra sem eru á ljósmyndunum, gælunöfn geta komið fram innan sviga eða annars staðar í greininni.

Eins og venja er er hægt að senda inn einungis texta og myndefni og við setjum það upp fyrir þig á smekklegan hátt þér að kostnaðarlausu (greiðir aðeins fyrir birtinguna). Við mælum með að þú notfærir þér þjónustuna, með því ertu öruggur um að útkoman verðir sem allra best. 

Netútgáfa 

Auglýsingar sem birtast eiga á vefnum geta ekki verið breiðari en 195 px (688mm) sjá nánar í verðskrá.

 

Netföng blaðsins eru theyr@vikubladid.is og vikubladid@vikubladid.is, ekki er nauðsynlegt að senda póst á bæði netföngin. Vinsamlega takið fram ef á að senda staðfestingu á tölvupósti:

 
Facebook MySpace Twitter Digg Delicious Stumbleupon Google Bookmarks RSS Feed 
<<  September 2010  >>
 S  M    M  F  F  L 
     1  2  3  4
  5  6  7  8  91011
12131415161718
19202122232425
2627282930