reglugerð um öryggisbúnað barna
Til foreldra og forráðamanna.
Af gefnu tilefni viljum við minna á reglugerð um öryggisbúnað barna.
Í 71. gr. umferðarlaga segir m.a.:
Ökumaður skal sjá um að í stað öryggisbeltis, eða ásamt því, noti barn viðurkenndan
barnabílstól, beltispúða eða annan sérstakan öryggis- og verndarbúnað ætlaðan börnum lægri en 150 sm á hæð. Ef slíkur búnaður er ekki í bifreið skal nota öryggisbelti fyrir barnið
Barn sem er lægra en 150 sm á hæð má ekki vera farþegi í framsæti bifreiðar sem búin er
uppblásanlegum öryggispúða fyrir framan sætið.
Barn yngra en þriggja ára má ekki vera farþegi í fólks-, sendi- eða vörubifreið nema hún sé
með viðeigandi öryggis- og verndarbúnaði ætluðum börnum.
Ökumaður skal sjá um að farþegi yngri en 15 ára noti öryggis- og verndarbúnað.
Öryggisbelti er hannað fyrir fullorðið fólk og því þarf, með beltinu, að nota viðeigandi búnað, annaðhvort barnabílstól eða bílpúða með eða án baks, hafi barn ekki náð 150 sm hæð.
Til upplýsingar um sektarupphæðir:
71. gr. Öryggisbelti
1. mgr.: Öryggisbelti ekki notað 10.000
2. mgr.: Sérstakur öryggisbúnaður fyrir barn ekki notaður 10.000
6. mgr.: Þess eigi gætt að farþegi yngri en 15 ára noti öryggis- og
verndarbúnað skv. 1. - 4. mgr. 15.000
Að sjálfsögðu þarf ekki að nefna að börnin eru það dýrmætasta sem við eigum og því um að gera að tryggja öryggi þeirra.
Með sumarkeðju
Lögreglan á Snæfellsnesi




