Borði

Maí

Vorskólinn 2010

Í vetur hefur verið gott samstarf á milli leik- og grunnskóla eins og undanfarin ár.  „Brúum bilið“ verkefnið hefur fest sig í sessi og hafa elstu börnin í leikskólanum komið í nokkrar heimsóknir í grunnskólann í vetur. Dagana 17. – 21. maí var svo komið að vorskólanum.  Íslenska fánanum var flaggað í tilefni af komu barnanna en það er ávallt mikil tilhlökkun hjá börnum, foreldrum og starfsfólki skólans þegar komið er að þessum tíma.  Fjölbreytt dagskrá var þessa daga. Nemendur fengu meðal annars að prófa sund, smíðar, textílmennt, heimilisfræði og tölvur, að ógleymdu að fá að takast á við stærðfræðitengd viðfangsefni og stafaverkefni.

Lesa meira...

 

Útskrift FSN 2010

Föstudaginn 21. Maí brautskráði Fjölbrautaskóli Snæfellinga 14 nemendur,  alla með stúdentspróf.   Af  náttúrufræðibraut útskrifuðust  þau Lilja Margrét Riedel, Sveinbjörn Ingi Pálsson og Sæbjörg Lára Másdóttir.  Af félagsfræðabraut útskrifuðust  Anna Júlía Skúladóttir, Ásthildur E. Erlingsdóttir, Egill Guðnason, Erla Lind Þórisdóttir, Eva Lind Guðmundsdóttir, Guðmundur Haraldsson, Hallfríður Guðný Ragnarsdóttir, Lárus Gohar Kazmi, Ólafur Hrafn Magnússon, Steinar Darri Emilsson og Sunna Björk Skarphéðinsdóttir.

Lesa meira...

 

Heimsókn Paimpol vinabæjar Grundarfjarðar

Góðir gestir frá Frakklandi eru í heimsókn í Grundarfirði.  Þetta er fólk frá Paimpol á Bretagne skaga sem er vinabær Grundarfjarðar.  Fulltrúi frá bæjarstjórninni í Paimpol er með í för ásamt forsvarsfólki “Grundapol” sem eru samtök vina Grundarfjarðar.  Í tilefni af heimsókninni var vígður garður sem ætlaður er sem framtíðar útivistarsvæði bæjarins og var honum gefið heitið “Paimpol garður”.  Gestirnir fóru að bretónska krossinum, voru við minningarathöfn í Grundarfjarðarkirkju um franska sjómenn sem fórust við Íslandsstrendur sem sr. Aðalsteinn Þorvaldsson annaðist ásamt organista og með aðstoð frá frönskum skiptinema, undirrituð var yfirlýsing um vinabæjarsambandið, heimsóttu GRun hf. og fóru í hringferð um Snæfellsnesið. 

Lesa meira...

 

Frambjóðendur og útskriftir í blaðinu í dag

Nýtt blað er nú komið á netið og með því að smella hér er unnt að lesa það í allri sinni dýrð.

 Með kveðju

Ritstjóri

 

Heimsókn frá Paimpol

Í næstu viku mun hópur frakka frá vinabæ Grundarfjarðar í Paimpol í Frakklandi koma í heimsókn til Íslands og skoða landið.  Hópurinn kemur til Grundarfjarðar að kvöldi mánudagsins, annars í hvítasunnu.  Á þriðjudag,  25. maí, er skipulögð dagskrá og er heimamönnum velkomið að taka þátt. 

Um morguninn verður farið að bretónska krossinum á Grundarkampi og síðan kl. 10.15 verður athöfn í kirkjunni til þess að minnast sæfarenda frá Paimpol.  Því næst kl. 10.45 er fyrirhugað að vígja gróðurreit á opna svæðinu neðan Ölkelduvegar og verður reitnum gefið nafnið Paimpol garður.  Lúðrasveit Tónlistarskóla Grundarfjarðar mun spila og fulltrúar vinabæjanna munu flytja ávörp. 

Lesa meira...

 
Fleiri greinar...
Borði
Facebook MySpace Twitter Digg Delicious Stumbleupon Google Bookmarks RSS Feed 
<<  Júlí 2010  >>
 S  M    M  F  F  L 
      1  2  3
  4  5  6  7  8  910
11121314151617
18192021222324
25262728293031