Stuttmyndasamkeppni Northern Wave Festival
Kvikmyndahátíðini Northern Wave Festival verður haldin í Grundarfirði 5. - 7. mars. Þetta er í þriðja sinn sem Dögg Mósesdóttir, kvikmyndagerðarkona úr Grundarfirði, heldur þessa hátíð en nú hefur hún í fyrsta sinn efnt til stuttmyndasamkeppni í tengslum við hátíðina en keppnin er fyrst og fremst ætluð Vestlendingum. Myndirnar eiga að vera 3 - 5 mínútur að lengd, efnisval er frjálst en vera frá árunum 2009 og/eða 2010.
Skilafrestur er til 1. ferbrúar að Smiðjustíg 10. merkt hátíðinni. hj




