Borði

Nes og Hemi-Sync aðferðir - Kynning

Lilja PetraNES; ný, byltingarkennd heilsufars mæling

Nutri-Energetics Systems® (NES) er frumkvöðull á sviði rannsókna og mælinga á líforkusviði mannsins. (“human body field”-HBF). Líforkusvið mannsins er skipulagður vefur upplýsinga og orku í líkamanum sem hefur áhrif á heilsufar okkar og vellíðan.

Þúsundir manna um víða veröld nota nú NES til að njóta meiri lífskrafts og til að endurbyggja og viðhalda tilfinningalegri og líkamlegri vellíðan.

Líkami okkar þarf á upplýsingum að halda.

Vellíðan okkar er háð efnaskiptum og flókinni lífeðlisfræði líkama okkar.  Líforku rannsóknir benda til undirliggjandi þátta sem hafa áhrif á líkamann, svokallað líforkusvið (flókinn vefur upplýsinga og orku) Skekkja í líforkusviðinu gæti orsakað truflun á upplýsingaflæði til líkamans. Líkaminn tekur á móti mótsagnakenndum skilaboðum vegna þess og geta þessar skekkjur  tengst heilsufars vandamálum og sjúkdómseinkennum.

NES mælingin

NES mælingin hefst á líforkusviðs mati sem gerist þannig að hönd er lögð á skanna í nokkrar sekúndur. Mælingin sýnir 145 mismunandi þætti í líforkusviðinu. Hún leiðir í ljós hvar er minnkað orkustig og truflun í upplýsingaflæði en hvorttveggja tengist öllum þeim þáttum sem eru mikilvægir í lífeðlisfræði. Forritið raðar í forgangsröð þeim þáttum sem fyrst þurfa athygli við og gerir þannig meðferðaraðilanum fært að beina meðferð að veikasta hlekknum og byggja grunninn í stað þess að vera vinna með afleiðingar vandamáls.

Infoceuticals

Næsti hluti NES prógrammsins er að nota svokallaða infoceuticals. Hver tegund infoceuticala inniheldur sértækar upplýsingar sem leiðrétta skekkju í viðkomandi hluta líforkusviðsins. Engin krossvirkni á sér stað við jurtir eða lyf.

NES er hægt að nota

  • Eitt sér til að hafa áhrif á þætti í líforkusviðinu sem tengjast líkamalegu, tilfinningalegu eða huglægu ástandi.
  • Sem hluti af daglegu heilsu og æfingaplani
  • Til að styrkja aðrar meðferðir og til detox eða afeitrunar á líkamanum.

Eins og reynslan er með aðrar tegundir heildrænna meðferða getur tekið tíma að upplifa breytingu á ástandi en það fer eftir mörgum þáttum þar með talið hversu alvarlegt vandamál er til staðar, hugsun og skoðunum, umhverfi og einkahögum. Flestir skjólstæðingar greina frá skjótum breytingum þó að þeir sem þjást af króniskum vandamálum séu lengur að finna mun.Til að ná virkilegum árangri er mælt með því að fá endurteknar mælingar á um 5 vikna fresti amk 4 sinnum. Hægt er að fræðast meira um NES á www.nutrienergetics.com

NES mæling verður í boði á Grundarfirði dagana 27.-28.janúar. Hafið samband við Lilju í síma 6990858

 

 

 Hemi-Sync®

Hemi-Sync er hljóðtækni sem rannsökuð hefur verið í 50 ár af Monroe stofnuninni í Bandaríkjunum í samvinnu við marga virta háskóla, geðlækna, lækna, kennara, verkfræðinga og fleiri bæði innan og utan Bandaríkjanna. 

Tæknin hefur reynst frábærlega til að bæta svefn og minnka streitu og kvíða.

Hemi-Sync nýtist fólki og ekki síst börnum með hverskyns námsörðugleika, ofvirkni, athyglisbrest, einhverfu, lesblindu og heilalömun (cerebral palsy).  Hemi-Sync samstillir heilann samtímis því að breyta bylgjulengd og mynstrum. Athyglin verður einbeittari, minni eykst og fólk hvílist betur meðan það sefur en svefn er mjög mikilvægur þáttur í öllu námsferli. Hemisync hjálpar einhverfum börnum að ná samhæfingu skynsviða.

Áhrif beta tíðninnar á heila barna með athyglisbrest og /eða ofvirkni (ADD) eykur eftirtekt og minnkar á sama tíma hvatlyndi og ofvirkni þeirra. Hin samvirku áhrif skapa ýmisskonar örvun sem hefst í heilaberki og fer yfir í randkerfið þar sem tilfinningum okkar er hrundið af stað. 

Metamúsik með Hemi-Sync mynstri getur einnig hjálpað lesblindu fólki og þeim sem lesa hægt þar sem bæði atriðin tengjast villu í tímasetningu milli heilahvelanna. Þegar við lesum eru flestir góðir lesendur með vinstra heilahvel virkt á tíðninni 13 rið og miðlungs mögnun. Lesblindir á hinn bóginn hafa tilhneigingu til að vera með 10 riða tíðni sem er alfa tíðni og fremur háa mögnun þó sumir þeirra hafa óvenjulega lága mögnun. Litli-heili þeirra sem eru lesblindir hefur enn ekki lært samhæfingu og tímasetningu sem tengist innra jafnvægi líkamans. Svo virðist sem samhæf blanda tónsmíða með yfirtónum á beta-tíðni og Hemi-Sync ívafi auðveldi nauðsynlega samstillingu heilans fyrir einbeitta athygli.

Tónlistar umhverfi hjálpar til við að læra af röggsemi fremur en af erfiðismunum.

Lilja Petra Ásgeirsdóttir þýddi og endursagði úr grein Carmen Montoto, Monroe leiðbeinanda frá Puerto Rico

Komdu og kynntu þér Hemisync á Hótel Framnesi 27.janúar kl 20.00

 

Lilja Petra Ásgeirsdóttir rekur Heilsu og hamingjulindina í Mosfellsbær og býður þar upp á fjölbreyttar meðferðir. Hún sér einnig um vefverslunina puls.is

 

 
Facebook MySpace Twitter Digg Delicious Stumbleupon Google Bookmarks RSS Feed 

Vikublaðið er í

sumarfríi til

10. ágúst 2010

Hafið gott sumar!

Ritstjóri

<<  Ágúst 2010  >>
 S  M    M  F  F  L 
  1  2  3  4  5  6  7
  8  91011121314
15161718192021
22232425262728
293031