Borði

Sólarkaffi skemmtinefndar Hollvinasamtaka Grundarfjarðar

Ágætu Grundfirðingar nær og fjær

Í tilefni þess að sól fer hækkandi á lofti og fer nú að skína á Grundfirðinga enn á ný höfum við nokkrir brottfluttir og núverandi Grundfirðingar ákveðið að efna til Sólarkaffis hér á höfuðborgarsvæðinu.

Með þessu erum við að hrinda af stað nokkurskonar skemmtinefnd innan Hollvinasamtaka Grundarfjarðar og stefnum á að gera margt fleira í framhaldinu ef undirtektir og þátttaka verður góð.

Við ætlum að hittast í Víkingsheimilinu Traðarlandi 1 þann 31. janúar 2010 milli kl. 14 – 17 og gæða okkur á ljúffengu sólarkaffi, pönnukökum og vöfflum með rjóma. Veitingarnar verða seldar á 700 kr fyrir fullorðna og 300 kr fyrir börn.

Allir eru velkomnir sem tengjast Grundarfirði á einhvern hátt hvort sem þeir búa þar eða ekki.

Með von um að sem flestir sjái sér fært að koma og fagna sólinni í hjörtum okkar.

 Skemmtinefndin:

Alla Birgisdóttir

Anna Njálsdóttir

Ásta Mósesdóttir

Bergþóra Sigurðardóttir

Guðný Lóa Oddsdóttir

Steinþóra Ágústsdóttir

 
Facebook MySpace Twitter Digg Delicious Stumbleupon Google Bookmarks RSS Feed 

Vikublaðið er í

sumarfríi til

10. ágúst 2010

Hafið gott sumar!

Ritstjóri

<<  Ágúst 2010  >>
 S  M    M  F  F  L 
  1  2  3  4  5  6  7
  8  91011121314
15161718192021
22232425262728
293031