Börn fædd árið 2009
Í blöðungnum í dag komu myndir með grundfirksum börnum fæddum á síðasta ári. Eitthvað lá ritstjóra á við uppsetningu og datt eitt barnið út af listanum og eitt barnið var sagt Hermanns Þórssonur í stað Hermanns Geirs. Búið er að gera lagfæringar á þessu og er hægt að sjá myndir af litlu krílunum með því að smella hér.
Viðkomandi foreldrar og börn eru beðin velvirðingar á þessum mistökum.
Þeir foreldrar sem enn eiga eftir að senda inn myndir af börnunum sínum er bent á að gera það hið fyrsta svo hægt sé að birta þau öll hér á vefnum.
Með kveðju
Hrafnhildur Jóna
Ritstjóri




