Hendum ekki verðmætum! Notuðum frímerkjum safnað til hjálparstarfs
Fréttatilkynning frá Sambandi íslenskra kristniboðsfélaga (SÍK) 5. janúar 2010:
Samband íslenskra kristniboðsfélaga (SÍK), í samstarfi við Póstinn, hefur nú hafið söfnun á notuðum frímerkjum. Heiti verkefnis er: Hendum ekki verðmætum! Söfnunin stendur til 31. janúar 2010 og er tekið við frímerkjum og umslögum á öllum póstafgreiðslum Póstsins um land allt.
Skorað er á einstaklinga og fyrirtæki að skila notuðum frímerkjum í safnkassa sem eru á öllum póstafgreiðslum Póstsins. Æskilegt er að fá frímerkin á umslögum en einnig er tekið við stökum frímerkjum. Allur ágóði verður notaður í þróunarstarf á sviði menntunar barna, unglinga og fullorðinna í Eþíópíu og Keníu.
Frímerkjum er einnig veitt móttaka allan ársins hring á skrifstofu SÍK, Grensásvegi 7, 2. hæð og í Litla húsinu, Glerárgötu 1, Akureyri.
Á árinu 2009 skilaði frímerkjasöfnun SÍK tæplega 2 milljónum króna.




