Borði

Janúar

Ferðafélag Snæfellsness með vefsíðu

vefsíða ferðafélagsinsNý heimasíða Ferðafélags Snæfellsness var tekin í gagnið fyrir nokkrum dögum. Að sögn Gunnars Njálssonar formanns félagsins, er tilkoma heimasíðu, mikið hjálpartæki til að koma upplýsingum á framfæri, ásamt undirbúning á gönguferðum og öðrum viðburðum. Þar verður einnig að finna ýmsan fróðleik, hægt að lesa um gönguleiðir og skoða myndir, ásamt ferðaáætlun hvers árs. Á næstu dögum bætist margt fróðlegt inn á síðuna.

Slóðin er www.ffsn.is
 

Stuttmyndasamkeppni Northern Wave Festival

Kvikmyndahátíðini Northern Wave Festival verður haldin í Grundarfirði 5. - 7.  mars. Þetta er í þriðja sinn sem Dögg Mósesdóttir, kvikmyndagerðarkona úr Grundarfirði, heldur þessa hátíð en nú hefur hún í fyrsta sinn efnt til stuttmyndasamkeppni í tengslum við hátíðina en keppnin er fyrst og fremst ætluð Vestlendingum. Myndirnar eiga að vera 3 - 5 mínútur að lengd, efnisval er frjálst en vera frá árunum 2009 og/eða 2010.

Skilafrestur er til 1. ferbrúar að Smiðjustíg 10. merkt hátíðinni. hj

 

Nes og Hemi-Sync aðferðir - Kynning

Lilja PetraNES; ný, byltingarkennd heilsufars mæling

Nutri-Energetics Systems® (NES) er frumkvöðull á sviði rannsókna og mælinga á líforkusviði mannsins. (“human body field”-HBF). Líforkusvið mannsins er skipulagður vefur upplýsinga og orku í líkamanum sem hefur áhrif á heilsufar okkar og vellíðan.

Þúsundir manna um víða veröld nota nú NES til að njóta meiri lífskrafts og til að endurbyggja og viðhalda tilfinningalegri og líkamlegri vellíðan.

Líkami okkar þarf á upplýsingum að halda.

Lesa meira...

 

UMFG vann Þótt 2 með öruggum sigri

Í gærkvöldi tóku Grundfirðingar á móti Þrótturum í 2 deild karla í blaki.

Töluverður munur var á liðunum í leiknum og eins og tölurnar segja náðu Þróttara aldrei að veita mótstöðu að ráði. Heimamenn voru ákveðnir að vinna leikinn og láta mistök sem voru gerð í fyrri leik liðana ekki trufla sig.  Fyrsta hrina var frekar róleg, liðin skiptust á að skora en í stöðunni  5-5 fóru heimamenn að skríða framúr og unnu svo hrinuna nokkuð auðveldlega.

Í  2 hrinu náðu heimamenn strax góðir forustu og í undir lok hrinunnar var ungu strákunum

Lesa meira...

 

Sólarkaffi skemmtinefndar Hollvinasamtaka Grundarfjarðar

Ágætu Grundfirðingar nær og fjær

Í tilefni þess að sól fer hækkandi á lofti og fer nú að skína á Grundfirðinga enn á ný höfum við nokkrir brottfluttir og núverandi Grundfirðingar ákveðið að efna til Sólarkaffis hér á höfuðborgarsvæðinu.

Með þessu erum við að hrinda af stað nokkurskonar skemmtinefnd innan Hollvinasamtaka Grundarfjarðar og stefnum á að gera margt fleira í framhaldinu ef undirtektir og þátttaka verður góð.

Við ætlum að hittast í Víkingsheimilinu Traðarlandi 1 þann 31. janúar 2010 milli kl. 14 – 17 og gæða okkur á ljúffengu sólarkaffi, pönnukökum og vöfflum með rjóma. Veitingarnar verða seldar á 700 kr fyrir fullorðna og 300 kr fyrir börn.

Lesa meira...

 
Fleiri greinar...
Facebook MySpace Twitter Digg Delicious Stumbleupon Google Bookmarks RSS Feed 

Vikublaðið er í

sumarfríi til

10. ágúst 2010

Hafið gott sumar!

Ritstjóri

<<  Ágúst 2010  >>
 S  M    M  F  F  L 
  1  2  3  4  5  6  7
  8  91011121314
15161718192021
22232425262728
293031