Borði

Febrúar

Baráttufundur um sjávarútvegsmál á fimmtudagskvöldið

GrundarfjörðurAlmennur baráttufundur um sjávarútvegsmál verður í félagsheimilinu Klifi í Ólafsvík nk. fimmtudagskvöld 18. febrúar og hefst klukkan 20:30. Víðtæk samstaða er um boðun fundarins en að honum standa fulltrúar Grundarfjarðarbæjar, Snæfellsbæjar, Stykkishólmsbæjar, Smábátafélagsins Snæfells, Útvegsmannafélags Snæfellsness og Verkalýðsfélags Snæfellinga.  Í tilkynningu segir að kastljósum verði einkum beint að þeim efnahags- og samfélagslegu áhrifum sem ríkjandi óvissa um framtíðarskipan í sjávarútvegi hefur. Hún setji mark sitt á fiskvinnslufyrirtækin, fiskvinnslufólk, smábátaútgerðir og yfirleitt allt mannlíf í byggðarlögum á Snæfellsnesi. Þarna vegi þungt hugmyndir um svokallaða fyrningarleið.

Lesa meira...

 

Löngu skipulagsferli lokið - fréttatilkynning

 

Langþráð tímamót eru staðreynd og er Aðalskipulag Grundarfjarðar 2003 - 2015, dreifbýlishluti, nú staðfest og orðið að veruleika.

 

Ferlið hefur staðið yfir með hléum frá árinu 1995 þegar vinna hófst við skipulag þéttbýlishlutans.  Því ferli lauk síðla árs 2003.  Fyrsta áfangaskýrsla skipulags dreifbýlishlutans var kynnt í bæjarráði þann 20. febrúar 2003.  Önnur skýrsla var kynnt bæjarstjórn 11. des 2003.  Þann 5. mars 2005 voru drög að aðalskipulagi kynnt samhliða íbúaþingi sem haldið var til að fá fram hugmyndir um málefni sveitarfélagsins.  Á þinginu voru 127 skráðir þátttakendur.  Skipulagstillagan var enn kynnt á almennum íbúafundi

Lesa meira...

 

Er tippið að gera útaf við Frænkuna?

Frænkan sem vann Hópleikinn í fyrra hefur ekki unnið einn einasta leik á þessu ári og tapaði núna síðast fyrir Sjóurum (er ekki kominn tími á að fá aðstoð). Nú RB er í efsta sætinu með fullt hús stiga þ.e. 18 stig og er það frábær árangur.  Bryggjupollar eru komnir í 7. sætið eftir sigur um helgina, enda tók Svenni seðilinn af Hadda og sá um hann einn. Sæbjúgun gerðu núna jafntefli við Timon og Pumbu enda líkir hópar. Guiennes er nýr hópur sem hefur komið sterkur inn í vetur, sennilega útaf nafninu. Litla ljónið virðist vera að minnka með hverri umferðinni, því það er búið að tapa fjórum umferðum í röð (þetta endar í kettlingi).

Lesa meira...

 

Röng dagsetning í auglýsingu FAG í Vikublaðinu þessa viku

Vakin er athygli á að í blaðinu sem berst bæjarbúum inn um bréfalúguna á morgun er auglýstur fundur hjá FAG, Félagi Atvinnulífsins í Grundarfirði. Röng dagsetning er í auglýsingunni en þar á auðvitað að standa finntudaginn 18. febrúar en ekki 11 sem er auðvitað liðinn. Fundurinn boðar nýjar áherslur og uppstokkun á félaginu sem hefur verið í lægð undanfarin ár og er skorað á atvinnurekendur í bæjarfélaginu að taka höndum saman og mæta á fundinn og blása nýju lífi í þetta þarfa félag.  hj
 

Nú er það risið upp aftur!

Hér er átt við Tippið

Jæja það er langt um liðið síðan ég skrifaði pistil í blaðið um Hópleikinn okkar en nú verður vikulegur pistill út keppnistímabilið. Til að fræða fólk  eru núna 34 hópar sem taka þátt með mismunandi nöfn sum ný og breytt frá fyrri keppnum. Ég ætla aðeins að renna yfir þessa hópa í stuttu máli og hvar staða þeirra er í dag. Meistararnir eru núna í 3. sæti í fyrstu deild eftir sigur á Trukkunum sem voru önnum kafnir við að undirbúa Þorrablótið. En þessi sigur Meistaranna þýðir það að Trukkarnir þurfa að bjóða Meisturunum í mat og þjóna þeim til borðs eftir veðmál sem þeir gerðu s.l. laugardagsmorgun (það verður örugglega fjör þá). Frænkan sem vann 1. deildina í fyrra er í neðsta sæti með 0 stig (greinilega búin að missa alla ættingja).

Lesa meira...

 
Fleiri greinar...
Borði
Facebook MySpace Twitter Digg Delicious Stumbleupon Google Bookmarks RSS Feed 
<<  September 2010  >>
 S  M    M  F  F  L 
     1  2  3  4
  5  6  7  8  91011
12131415161718
19202122232425
2627282930