Borði

Febrúar

Sólarkaffi brottfluttra Grundfirðinga

SólarkaffiSunnudaginn 31. janúar stóð Átthagafélag Grundarfjarðar, skemmtinefnd Eyrbyggju, fyrir sólarkaffi í Víkingsheimilinu Reykjavík. Alls komu saman meira en 100 Grundfirðingar og gerðu sér glaðan dag yfir spjalli, pönnukökum og handboltaleik. Þar sem Grundfirðingar koma saman - þar er gaman!
Átthagafélagið stefnir að því að halda Góugleði í mars fyrir alla sem eru Grundfirðingar í hjarta sínu - sem eru fjöldamargir!
Blaðinu bárust nokkrar skemmtilegar myndir frá samsætinu sem Steinþóra Ágústsdóttir tók og er að finna hér.

Lesa meira...

 

Greiða ekki fyrir refaveiðar

rebbiBæjarráð Grundarfjarðar ætlar að standa við fyrri ákvörðun sína um að greiða ekki verðlaun fyrir veidda refi á þessu ári, þrátt fyrir að ríkisstjórn íslands hafi tekið til baka þá ákvörðun að hætta greiðslum fyrir refaveiðar. Í fundargerð bæjarráðs frá síðasta fundi þess segir meðal ananrs. “Bæjarráð samþykkir samhljóða að staðfesta fyrri ákvörðun um að ekki verði greidd verðlaun vegna veiða á ref, enda er engin fjárveiting í fjárhagsáætlun 2010 til þessa verkefnis.
 

Skert þjónusta grunnskólans

Í fundargerð bæjarráðs Grundarfjarðarbæjar er fjallað um framlag jöfnunarsjóðs til reksturs grunnskóla fyrir árið 2010.  Bókuð var ályktun þar sem skorað var á sjóðinn að hraða vinnu við endurskoðun reglnanna og byggja þær á raunverulegum útsvarstekjum sveitarfélaganna. Miðað við þær jöfnunargreiðslur sem grunnskólinn fær nú sér bæjarráð ekki fram á annað en skaða skólastarfið  illa m.a. verði að samkenna meirihluta árganganna sem þykir ekki físilegur kostur vegna stærðar skólans., Einnig þykir séð að sérkennslu verði ekki sinnt innan fjárlagaramma skólans og aðrir þættir eins og valgreinar verði í uppnámi.  
Lækkun framlags jöfnunarsjóðs sveitarfélaganna nemur tæplega 7% fyrir árið 2010, nemendum
fækkaði um 5,5%.     hj
 

Upp, upp mín sál og allt mitt geð

Sigurborg Kr. HannesdóttirSú var tíðin að það þótti aðallega vera skrýtið fólk sem stundaði jóga.  Einhverjir sérvitringar.  En nú er öldin önnur og að stunda jóga þykir hið besta mál og stundum bara nokkuð flott.  Þetta þótti skrýtið meðan fólk vissi ekki alveg hvað þetta var og við manneskjurnar erum oft hrædd við það sem við þekkjum ekki.

Jóga hefur náð til fólks vegna þess að það virkar.  Það virkar vegna þess að það eykur orkuflæði um líkamann og eflir lífsorkuna.  Hvað þýðir það?  Við höfum flest séð hvað gerist þegar fólk sem er alvarlega veikt ákveður að lifa lengur, kannski framyfir einhvern viðburð í fjölskyldunni.  Eða þegar fólk finnur ekki tilgang með lífinu og lífslöngunin hverfur.  Þá gerist hrörnunin hratt.  Líkami og sál, eru í raun eitt og í jóga erum við að tengja þetta tvennt saman, þannig að það vinni hvort með öðru.  Við erum líka að víkka vitundina um hver við erum og til hvers við erum hér.  Það kann að hljóma framandi, en hvernig er hægt að víkka vitundina, með því að teygja á lærvöðvunum?

Lesa meira...

 
Borði
Facebook MySpace Twitter Digg Delicious Stumbleupon Google Bookmarks RSS Feed 
<<  Júlí 2010  >>
 S  M    M  F  F  L 
      1  2  3
  4  5  6  7  8  910
11121314151617
18192021222324
25262728293031