Fréttir úr Grunnskóla Grundarfjarðar
Fyrir nokkrum árum tók til starfa starfsdeild við Grunnskóla Grundarfjarðar og er m.a. inni í þeirra verkefnaskrá að gera við hluti sem eru orðnir þreyttir s.s. húsgögn og aðra muni skólans. Fyrir ýmsa viðburði skólans eru nemendur starfsdeildarinnar til aðstoðar við ýmis tæknimál. Nemendur hanna einnig og smíða sína eigin hluti, þeir gera við mótora, sjóða, flétta körfur, smíðuðu tvíhjól, listaverk úr járni, tré ofl.
Í mörg ár hefur okkur íþróttakennara dreymt um að eignast útbúnað til að undirbúa okkur fyrir þátttöku í Skólahreysti en sökum skorts á fjármagni hefur sá draumur ekki orðið að veruleika.
Við leituðum því til starfsdeildarinnar til að athuga hvort nemendur hennar gætu lagt okkur lið. Á sama tíma datt upp í hendurnar á þeim mikið magn af borðfótum undan gömlum skólaborðum sem átti að henda úr geymslu . Þeir hirtu alla hrúguna og skáru niður ef vera kynni að hægt væri að nýta þetta til járnsmíða. Þeir sáu strax tækifæri á að sjóða saman nokkrar einingar og nota í tækin og fóru þeir í leiðangur til að fá öll mál rétt og eru tækin okkar því í réttum hlutföllum.
Úr þessu voru tækin svo smíðuð að öllu leyti nema rörið sem þeir þurftu að kaupa og festingarnar voru hirtar úr úrgangi Vélsmiðjunnar Berg ehf. með góðfúslegu leyfi. Þess má geta að vandað var til verks og lögðu nemendur mikla vinnu og metnað í þetta verk enda bera tækin þess merki.
Þessi tæki munu koma að góðum notum í framtíðinni og viljum við fyrir hönd skólans þakka starfsdeildinni og umsjónarmönnum hennar fyrir vel unnið verk.
Íþróttakennarar




