Framlagning kjörskrár í Grundarfjarðarbæ 27. febrúar 2010
Kjörskrá vegna þjóðaratkvæðagreiðslu sem fram á að fara þ. 6. mars 2010, verður lögð fram skv. ákv. 26. gr. laga nr. 24/2000 með síðari breytingum þ. 27. febrúar 2010.
Kjörskráin mun liggja frammi til skoðunar á skrifstofu Grundarfjarðarbæjar mánudag - fimmtudag frá kl. 09.30 - 15.30 og föstudag frá kl. 09:30 – 14:00.
Allir íslenskir ríkisborgarar sem náð hafa 18 ára aldri á kjördag (fæddir 6. mars 1992 eða fyrr) eiga að vera á kjörskrá þar sem lögheimili var skráð þ. 13. febrúar 2010, þ.e. þremur vikum fyrir kjördag. Flutningar innan sveitarfélags eða milli sveitarfélaga eftir þann tíma, breyta engu um staðsetningu í kjörskrá.
Þeir íslenskir ríkisborgarar sem dvelja erlendis og hafa verið þar styttra en í átta ár, eiga kosningarétt í því sveitarfélagi sem þeir áttu síðast lögheimili í. Þeir íslenskir ríkis-borgarar sem hafa dvalið erlendis lengur en í átta ár, en sóttu um skráningu í kjörskrá fyrir 1. desember 2009, eiga kosningarétt í því sveitarfélagi sem þeir áttu síðast lögheimili í.
Ef einhver hefur tilkynnt um flutning fyrir 13. febrúar 2010, en er ekki á þeim stað í kjörskránni sem nýtt heimilisfang gefur tilefni til, skal leggja fram flutningstilkynninguna til staðfestingar og ósk um leiðréttingu og mun þá sveitarstjórnin taka málið til meðferðar.
Sveitarstjórn er heimilt að taka mál vegna kjörskrár til meðferðar allt fram á kjördag skv. ákv. 27. gr. laga nr. 24/2000 með síðari breytingum.
Grundarfirði, 23. febrúar 2010,
Bæjarstjóri Grundarfjarðarbæjar.
Skrifstofa Grundarfjarðarbæjar er að Grundargötu 30, 350 Grundarfjörður.




