Borði

Febrúar

Styttist í stuttmyndahátíðina Northern Wave

Northern Wave 2010Nú er rétt rúm vika í að Grundarfjörður fyllist af kvikmyndaáhugafólki  þegar Northern Wave hátíðin hefst. Búið er að setja saman dagskrá helgarinnar og er hægt að nálgast hana á vefnum www.northernwavefestival.com.  Grundfirðingar eru hvattir til að taka þátt í fiskisúpukeppninni sem haldin verður á laugardagskvöldið.  Hátíðin skaffar fiskmeti í súpuna ásamt áhöldum fyrir súpuna handa gestum. Hægt er að skrá sig með tölvupósti á info@northernwavefestival.com. Verðlaunin fyrir bestu súpuna er út að borða á Hótel Framnesi fyrir tvo. .   hj
 

Bjartar vonir

Ég varð þeirrar gæfu njótandi að taka að mér dyravörslu ásamt félögum mínum úr kirkjukór Grundarfjarðar, í Félagsheimilinu Klifi í Ólafsvík þar sem nemendur úr Fjölbrautarskóla Snæfellinga héldu árshátíð sína ,þegar það fréttist að við ætluðum að taka þetta að okkur fóru að berast til okkar varnaðarorð um að við mættum nú búast við ýmsu af þvi fólki sem þarna ætlaði að skemmta sér,en af því eg er nú frekar skilningssljór maður á svona ummæli þá lét eg og félagar mínir þetta sem vind um eyru þjóta.

Lesa meira...

 

Frænkan er að ná sér á strik

Frænkan vann sinn fyrsta sigur s.l. helgi er hún vann Hjónin 11-10, þannig að tippið er ekki alveg að fara með hana. Meistararnir virðast vera komnir á skrið því þeir unnu Sjóara og komust í 3. sætið. En frækilegasi sigur helgarinnar var er Sverðdís með Sverri Karls í broddi fylkingar vann S.G. Hópinn 9-8. Þeir Guðni og Siggi hafa ekki sést utandyra síðan. Nú Trukkarnir fóru í æfingabúðir suður á land en það dugði ekki til því þeir töpuðu fyrir Sæstjörnunni sem er nú kominn í 1. sætið með 19 stig. Þeir félagar í Bryggjupollum unnu R.B. sem eru núna í 2. sæti og sá Svenni alfarið um seðilinn þar sem hafnarvörðurinn lá veikur.  Timon og Pumba unnu E.D.is og er greinilegt að þeir félaga Diddi og Elli verða að fá sér aðstoð.

Lesa meira...

 

Fréttir úr Grunnskóla Grundarfjarðar

 

Fyrir nokkrum árum tók til starfa starfsdeild við Grunnskóla Grundarfjarðar og  er m.a. inni í þeirra verkefnaskrá að gera við hluti sem eru orðnir þreyttir s.s. húsgögn og aðra muni skólans.  Fyrir ýmsa viðburði skólans eru nemendur starfsdeildarinnar  til aðstoðar við ýmis tæknimál.   Nemendur hanna einnig og smíða sína eigin hluti, þeir gera við mótora, sjóða, flétta körfur, smíðuðu tvíhjól, listaverk úr járni, tré ofl. 

Í mörg ár hefur okkur íþróttakennara dreymt um að eignast útbúnað til að undirbúa okkur fyrir þátttöku í Skólahreysti  en sökum skorts á fjármagni hefur sá draumur ekki orðið að veruleika. 

Lesa meira...

 

Framlagning kjörskrár í Grundarfjarðarbæ 27. febrúar 2010

 Kjörskrá vegna þjóðaratkvæðagreiðslu sem fram á að fara þ. 6. mars 2010, verður lögð fram skv. ákv. 26. gr. laga nr. 24/2000 með síðari breytingum þ. 27. febrúar 2010.

 Kjörskráin mun liggja frammi til skoðunar á skrifstofu Grundarfjarðarbæjar mánudag - fimmtudag frá kl. 09.30 - 15.30 og föstudag frá kl. 09:30 – 14:00.

 Allir íslenskir ríkisborgarar sem náð hafa 18 ára aldri á kjördag (fæddir 6. mars 1992 eða fyrr) eiga að vera á kjörskrá þar sem lögheimili var skráð þ. 13. febrúar 2010, þ.e. þremur vikum fyrir kjördag.  Flutningar innan sveitarfélags eða milli sveitarfélaga eftir þann tíma, breyta engu um staðsetningu í kjörskrá.

Lesa meira...

 
Fleiri greinar...
Facebook MySpace Twitter Digg Delicious Stumbleupon Google Bookmarks RSS Feed 

Vikublaðið er í

sumarfríi til

10. ágúst 2010

Hafið gott sumar!

Ritstjóri

<<  Ágúst 2010  >>
 S  M    M  F  F  L 
  1  2  3  4  5  6  7
  8  91011121314
15161718192021
22232425262728
293031