Eldri fréttir
Heimsókn frá Paimpol

Í næstu viku mun hópur frakka frá vinabæ Grundarfjarðar í Paimpol í Frakklandi koma í heimsókn til Íslands og skoða landið.  Hópurinn kemur til Grundarfjarðar að kvöldi mánudagsins, annars í hvítasunnu.  Á þriðjudag,  25. maí, er skipulögð dagskrá og er heimamönnum velkomið að taka þátt. 

Um morguninn verður farið að bretónska krossinum á Grundarkampi og síðan kl. 10.15 verður athöfn í kirkjunni til þess að minnast sæfarenda frá Paimpol.  Því næst kl. 10.45 er fyrirhugað að vígja gróðurreit á opna svæðinu neðan Ölkelduvegar og verður reitnum gefið nafnið Paimpol garður.  Lúðrasveit Tónlistarskóla Grundarfjarðar mun spila og fulltrúar vinabæjanna munu flytja ávörp. 

Nánar...


Þessi vefur er prófaður og vottaður
samkvæmt alþjóðlegum stöðlum.

Erlendar fréttir
Borði

Tvinn-bíll í Þjóðgarðinn

Tvinnbíll í þjóðgarðinnFyrir skömmu festi Umhverfisstofnun kaup á nýjum bíl til notkunar í Þjóðgarðinum Snæfellsjökli. Bíllinn er af gerðinni Toyota Prius sem er svokallaður tvinn-bíll.  Hann er sparneytinn og notar bæði rafmagn og bensín eftir því sem hentar hverju sinni. Bíllinn er almennt álitinn með umhverfishæfari bílum og eru kaupin hugsuð sem byrjunarskref fyrir visthæfari bílaflota Umhverfisstofnunar. Umhverfisstofnun keypti jafnframt Volkswagen Passat bíl fyrir starfsemina í Reykjavík en sá bíll notar metan og bensín.

 

 

Stofnunin mun eftir sem áður þurfa að nota stóra bíla í ákveðin verk víða um land s.s. yfir sumartímann í þjóðgarðinum. Umhverfisráðuneytið hefur lýst ánægju með þessa þróun og hefur lagt áherslu á umhverfishæfari bílaflota fyrir ríkisstofnanir.

 

Á myndinni er Hjalti Guðmundsson sviðsstjóri sviðs náttúruauðlinda Umhverfisstofnunar að afhenda Guðbjörgu Gunnarsdóttur þjóðgarðsverði lyklana að nýja bílnum.


 

 
Facebook MySpace Twitter Digg Delicious Stumbleupon Google Bookmarks RSS Feed 
<<  September 2010  >>
 S  M    M  F  F  L 
     1  2  3  4
  5  6  7  8  91011
12131415161718
19202122232425
2627282930