Eldri fréttir
Útskrift FSN 2010
Föstudaginn 21. Maí brautskráði Fjölbrautaskóli Snæfellinga 14 nemendur,  alla með stúdentspróf.   Af  náttúrufræðibraut útskrifuðust  þau Lilja Margrét Riedel, Sveinbjörn Ingi Pálsson og Sæbjörg Lára Másdóttir.  Af félagsfræðabraut útskrifuðust  Anna Júlía Skúladóttir, Ásthildur E. Erlingsdóttir, Egill Guðnason, Erla Lind Þórisdóttir, Eva Lind Guðmundsdóttir, Guðmundur Haraldsson, Hallfríður Guðný Ragnarsdóttir, Lárus Gohar Kazmi, Ólafur Hrafn Magnússon, Steinar Darri Emilsson og Sunna Björk Skarphéðinsdóttir.
Nánar...


Þessi vefur er prófaður og vottaður
samkvæmt alþjóðlegum stöðlum.

Erlendar fréttir
Borði

Skert þjónusta grunnskólans

Í fundargerð bæjarráðs Grundarfjarðarbæjar er fjallað um framlag jöfnunarsjóðs til reksturs grunnskóla fyrir árið 2010.  Bókuð var ályktun þar sem skorað var á sjóðinn að hraða vinnu við endurskoðun reglnanna og byggja þær á raunverulegum útsvarstekjum sveitarfélaganna. Miðað við þær jöfnunargreiðslur sem grunnskólinn fær nú sér bæjarráð ekki fram á annað en skaða skólastarfið  illa m.a. verði að samkenna meirihluta árganganna sem þykir ekki físilegur kostur vegna stærðar skólans., Einnig þykir séð að sérkennslu verði ekki sinnt innan fjárlagaramma skólans og aðrir þættir eins og valgreinar verði í uppnámi.  
Lækkun framlags jöfnunarsjóðs sveitarfélaganna nemur tæplega 7% fyrir árið 2010, nemendum
fækkaði um 5,5%.     hj
 
Facebook MySpace Twitter Digg Delicious Stumbleupon Google Bookmarks RSS Feed 
<<  September 2010  >>
 S  M    M  F  F  L 
     1  2  3  4
  5  6  7  8  91011
12131415161718
19202122232425
2627282930