Eldri fréttir
Heimsókn Paimpol vinabæjar Grundarfjarðar
Góðir gestir frá Frakklandi eru í heimsókn í Grundarfirði.  Þetta er fólk frá Paimpol á Bretagne skaga sem er vinabær Grundarfjarðar.  Fulltrúi frá bæjarstjórninni í Paimpol er með í för ásamt forsvarsfólki “Grundapol” sem eru samtök vina Grundarfjarðar.  Í tilefni af heimsókninni var vígður garður sem ætlaður er sem framtíðar útivistarsvæði bæjarins og var honum gefið heitið “Paimpol garður”.  Gestirnir fóru að bretónska krossinum, voru við minningarathöfn í Grundarfjarðarkirkju um franska sjómenn sem fórust við Íslandsstrendur sem sr. Aðalsteinn Þorvaldsson annaðist ásamt organista og með aðstoð frá frönskum skiptinema, undirrituð var yfirlýsing um vinabæjarsambandið, heimsóttu GRun hf. og fóru í hringferð um Snæfellsnesið. 
Nánar...


Þessi vefur er prófaður og vottaður
samkvæmt alþjóðlegum stöðlum.

Erlendar fréttir
Borði

Grundarfjörður í 30. sæti, Snæfellsbær í fyrsta

Nágrannasveitarfélagið Snæfellsbær er í efsta sæti á lista yfir draumasveitarfélagið samkvæmt einkunna-gjöf  Vísbendingar, vikurits um viðskipti og efnahagsmál. Grundarfjörður vermir aftur á móti það þrítugasta.

Vísbending setur árlega upp lista yfir draumasveitar-félög og geftur þar sveitarfélögum einkunn útfrá afkomu og fjárhagslegri stöðu. Forsendurnar sem miðað er við eru í fyrsta lagi : Skattheimt,a en hún þarf að vera sem lægst. Í öðru lagi þurfa breytingar á fjölda íbúa að vera hóflegar. í þriðja lagi þarf afkoma sem hlutfall af tekjum að vera sem næst 10 prósent. í fjórða lagi þarf hutfall skulda af tekjum að vera sem næst einum og í fimmta lagi þarf veltufjárhutfall að vera sem næst einum, einnig.
Snæfellsbær er nú í fyrsta sinn í efsta sæti listans yfir draumasveitarfélögin en var í öðru sæti í fyrra og 29. sæti árið þar áður. Hornafjörður er í öðru sæti í ár og Garðabær í þriðja. Ef litið er á sveitarfélög á Vesturlandi og Vestfjörðum sérstaklega þá er Stykkishólmur í 15. sæti, Akranes í 21. sæti, Ísafjarðarbær í 22. sæti, Grundarfjarðarbær í 30. sæti og Borgarbyggð er í 38. sæti og því neðsta á listanum en á honum eru stærstu sveitarfélög landsins.
 
Facebook MySpace Twitter Digg Delicious Stumbleupon Google Bookmarks RSS Feed 
<<  September 2010  >>
 S  M    M  F  F  L 
     1  2  3  4
  5  6  7  8  91011
12131415161718
19202122232425
2627282930