Eldri fréttir
Opið hús í Tónlistarskólanum

Tónlistarskóli Grundarfjarðar

Fimmtudaginn 13.maí verður opið hús í tónlistarskólanum frá kl:13:30 til 14:30. Ýmis tónlistaratriði verða í gangi á þessum tíma og boðið verður uppá léttar veitingar. Allir velkomnir !

Nemendur mæti kl.13 til að taka við prófskírteinum.


Þessi vefur er prófaður og vottaður
samkvæmt alþjóðlegum stöðlum.

Erlendar fréttir
Borði

Lumar þú á góðri fiskisúpuuppskrift?

FiskisúpukeppniÞað ætti ekki að fara framhjá neinum að á hverju ári breytist Grundarfjörður í lítið kvikmyndasýningarþorp þegar Northern Wave Film Festival leggur bæinn undir sig. Dögg Mósesdóttir ber veg og vanda að hátíðinni í  ár líkt og fyrri ár, en hún er upphafsmaður og drifkraftur hátíðarinnar. Búið var að auglýsa eftir vestlenskum stuttmyndum til keppni en því miður reynist ekki vera neinn kvikmyndaáhugamaður eða kona í bænum. Það kemur þó ekki að sök þó ekki séu sýndar vestlenskar myndir í ár því aldrei hefur borist inn eins mikill fjöldi af myndum og í ár og því er dagskráin orðin stútfull. En til að fá nú bæjarbúa til að taka virkan þátt í hátíðinni og kynnast sínum gestum verður í ár bryddað upp á keppni í fiskisúpugerð meðal íbúanna. Ætlunin er að á laugardaginn verði haldið heljarinnar fiskisúpupartý og er skorað á íbúa að koma nú með sína bestu fiskisúpu og bjóða fólki að smakka. Gestir geta svo kosið um hvaða súpu bragðast best. Keppendur í súpukeppninni geta sett sig í samband við aðstandendur kvikmyndahátíðirinnar í netfangið info@northernwavefestival.com og fengið fiskmetið sér að kostnaðarlausu.  Svo er bara að mæta með súpuna sína í góðum potti á staðinn sem verður auglýstur síðar.  Skorað er á Grundfirðinga að taka nú þátt í þessari skemmtilegu keppni og um leið búa til einstakann bæjarbrag yfir hátíðarhelgina eins og íbúum einum er lagið. hj
 
Facebook MySpace Twitter Digg Delicious Stumbleupon Google Bookmarks RSS Feed 
<<  September 2010  >>
 S  M    M  F  F  L 
     1  2  3  4
  5  6  7  8  91011
12131415161718
19202122232425
2627282930