Eldri fréttir
Vinnuskólinn sumarið 2010 hjá Grundarfjarðarbæ

Vinnuskólinn mun hefja starfsemi miðvikudaginn 2. júní 2010. Vinnuskólinn starfar í tveimur tímabilum, fyrra tímabilið verður frá 2. júní til 5. júlí að báðum dögunum meðtöldum. Seinna tímabilið verður frá 29. júní til 29. júlí að báðum dögum meðtöldum. Þátttakendum verður skipt niður á tímabil eftir skráningu lýkur. Unnið verður mánudaga til fimmtudaga kl. 8:30-12:00.

Klæðnaður skal hæfa veðráttu og eðli vinnunnar. Helstu verkefni verða fegrun umhverfisins og vinna tengd gróðri.

Nánar...


Þessi vefur er prófaður og vottaður
samkvæmt alþjóðlegum stöðlum.

Erlendar fréttir
Borði

FSN - Fatasöfnun til styrktar hjálparstarfi á Haítí

Haití jarðskjálfti Sólardagar verða haldnir í Fjölbrautaskóla Snæfellinga þann 11. - 12. febrúar nk.  Þar verður brotið upp hefðbundið skólastarf með því að skipuleggja fjölbreytta og skemmtilega dagskrá fyrir nemendur en um leið höfum við ákveðið að láta gott af okkur leiðaJ.

 

Nokkrir nemendur hafa tekið að sér að fara í gang með fatasöfnun í samstarfi við Rauða Kross deildirnar á Snæfellsnesi. Ákveðið hefur verið að hafa heljarinnar Kolaportsstemningu  í skólanum þessa daga þar sem við munum selja fötin og mun allur ágóðinn renna til barnastarfs Unicef sem Rauði krossinn mun sjá um að koma áleiðis.

Það eru allir velkomnir í skólann þessa daga til að taka þátt í söfnuninni og versla í FSN- Portinu.  Þau föt eða það sem þið ákveðið að gefa og ekki selst fer síðan einnig í Rauða Krossinn og rétta leið þangað sem þörfin er mest.

 

Ef þið viljið gefa föt (skór, töskur, ofl.) þá er best að koma þeim beint til okkar í FSN. Ef þið eigið ekki möguleika á því hafið þá samband við Helgu Lind(8951662) eða Hugrúnu(8690281) og við finnum örugga leið til okkar.

 
Facebook MySpace Twitter Digg Delicious Stumbleupon Google Bookmarks RSS Feed 
<<  September 2010  >>
 S  M    M  F  F  L 
     1  2  3  4
  5  6  7  8  91011
12131415161718
19202122232425
2627282930