Eldri fréttir
Heimsókn frá Paimpol

Í næstu viku mun hópur frakka frá vinabæ Grundarfjarðar í Paimpol í Frakklandi koma í heimsókn til Íslands og skoða landið.  Hópurinn kemur til Grundarfjarðar að kvöldi mánudagsins, annars í hvítasunnu.  Á þriðjudag,  25. maí, er skipulögð dagskrá og er heimamönnum velkomið að taka þátt. 

Um morguninn verður farið að bretónska krossinum á Grundarkampi og síðan kl. 10.15 verður athöfn í kirkjunni til þess að minnast sæfarenda frá Paimpol.  Því næst kl. 10.45 er fyrirhugað að vígja gróðurreit á opna svæðinu neðan Ölkelduvegar og verður reitnum gefið nafnið Paimpol garður.  Lúðrasveit Tónlistarskóla Grundarfjarðar mun spila og fulltrúar vinabæjanna munu flytja ávörp. 

Nánar...


Þessi vefur er prófaður og vottaður
samkvæmt alþjóðlegum stöðlum.

Erlendar fréttir
Borði

Sólarkaffi brottfluttra Grundfirðinga

SólarkaffiSunnudaginn 31. janúar stóð Átthagafélag Grundarfjarðar, skemmtinefnd Eyrbyggju, fyrir sólarkaffi í Víkingsheimilinu Reykjavík. Alls komu saman meira en 100 Grundfirðingar og gerðu sér glaðan dag yfir spjalli, pönnukökum og handboltaleik. Þar sem Grundfirðingar koma saman - þar er gaman!
Átthagafélagið stefnir að því að halda Góugleði í mars fyrir alla sem eru Grundfirðingar í hjarta sínu - sem eru fjöldamargir!
Blaðinu bárust nokkrar skemmtilegar myndir frá samsætinu sem Steinþóra Ágústsdóttir tók og er að finna hér.
Sólarkaffi Sólarkaffi Sólarkaffi Sólarkaffi Sólarkaffi Sólarkaffi
 
Facebook MySpace Twitter Digg Delicious Stumbleupon Google Bookmarks RSS Feed 
<<  September 2010  >>
 S  M    M  F  F  L 
     1  2  3  4
  5  6  7  8  91011
12131415161718
19202122232425
2627282930