
Að liðnum jólum höfum við í handverksfélaginu ákveðið að taka til starfa aftur. Að þessu sinni ætlum við að hittast annan hvern fimmtudag. Við höldum til á sama stað og áður í sal að Borgarbraut 16 og hittumst kl. 20:00. Jólastundin okkar var indæl og var notalegt að hittast og taka sér örlítið frí frá jólastressi. Við ráðgerum að halda áfram upplestri á þessum fundum og eru tillögur um lestrarefni vel þegnar. Sem fyrr eru allir áhugasamir hjartanlega velkomnir.
Með von um gott samstarf og góðar stundir.
E.I.K