Eldri fréttir
Að vekja athygli á því sem vel er gert - frá Heimili og skóla
Foreldraverðlaun Heimilis og skóla – landssamtaka foreldra, verða afhent í 15. sinn við hátíðlega athöfn í  Þjóðmenningarhúsinu í Reykjavík þriðjudaginn 1. júní kl. 15.  Opnað hefur verið fyrir tilnefningar til verðlaunanna.  Á vori hverju er beðið með eftirvæntingu eftir því hverjir hljóta viðurkenningar og viðburðurinn hefur unnið sér fastan sess í samfélaginu.

Með afhendingu verðlaunanna er vakin athygli á þeim mörgu verkefnum sem stuðla að því að efla hið mikilvæga starf sem fram fer innan leik- grunn- og framhaldsskóla og jákvætt samstarf heimila, skóla og samfélagsins.

Nánar...


Þessi vefur er prófaður og vottaður
samkvæmt alþjóðlegum stöðlum.

Erlendar fréttir
Borði

janúar

Fréttatilkynning frá Kennarasambandinu

Að mati Kennarasambandsins eru forsendur samstöðu um kjaramál brostnar vegna þess að ríkið hefur ekki komið að samráði samtaka launamanna og vinnuveitenda. Hins vegar leggur KÍ áherslu á að samstaða launamanna haldi áfram – sjá nánar í ályktun hér að neðan sem samþykkt var af stjórn KÍ og kjararáði sambandsins í gær:

„Kennarasamband Íslands hefur undanfarna mánuði tekið þátt í víðtæku samráði samtaka launamanna og vinnuveitenda á almennum og opinberum vinnumarkaði. Í þessari vinnu var markmiðið að leita færra leiða í kjaramálum, atvinnumálum og velferðarmálum vegna kjarasamninga á næstu mánuðum. Þetta starf hefur farið fram við erfið skilyrði vegna slæms

Lesa meira...

 

„Unga fólkið og heimabyggðin“

Anna Júnía Kjartansdóttir

Landsbyggðarvinir í Reykjavík og nágrenni standa fyrir  verkefni  fyrir nemendur 12 ára og eldri.  Markmið verkefnisins er m.a. að efla bjartsýni unga fólksin á framtíðina, að unga fólkinu finnist að framlag þess skipti máli og á það sé hlustað, efli þjóðarvitund og að unga fólkið kynnist betur sinni heimabyggð.

Tveir skólar í hverjum landsfjórðungi taka þátt í hvert sinn.  Í Grundarfirði taka nemendur í 9. bekk þátt í verkefninu í ár en Unnur Birna Vilhjálmsdóttir, fyrrum alheimsfegurðardrottning, er verndari verkefnisins.

Verkefnið er tvískipt og í fyrri hluta þess, sem er einstaklingsvinna, eiga nemendur að skila ritgerð um heimabyggð sína. Í ritgerðinni eiga unglingarnir að gaumgæfa málefni byggðar sinnar, velta fyrir sér framtíðarmöguleikum

 

Lesa meira...

 

Rafrænt einelti

logo heimilis og skóla samtaka foreldra

Einelti er samfélagsvandamál sem hefur alltaf verið til og verður líklega alltaf til meðal manna. Það þarf ákveðin skilyrði og þrífst í aðgerðarleysi fjöldans. Sérstaklega þar sem afskiptaleysi og sinnuleysi er mikið og þar sem ekki er tekið á málum. Það eru ekki einungis fagmenn og fræðingar sem geta fjallað um málið og brugðist við því heldur þarf fjöldinn að taka það að sér og almenningur að láta sig það varða. Sérstaklega þurfa foreldrar að vera meðvitaðir um hvað einelti er og hvernig það lýsir sér á hverjum tíma til að geta brugðist við því.

Lesa meira...

 

Lilta bryggja rifin

Litla bryggja rifin niður í janúar 2009Í síðustu viku hófust starfsmenn Björgunar ehf  handa við að brjóta niður og fjarlægja Litlu - bryggjuna í Grundarfirði. Garðar Hafsteinsson hafnarvörður reiknar með að það verk taki um tvo mánuði. Þegar því verki lýkur verður hafist handa við grjótfyllingu milli Norður og Suðurgarðs og að því búnu verður sett niður flotbryggja með landgangi sem ætlað er að þjónusta  þá farþega skemmtiferðaskipa sem fluttir eru í land á léttabátum, þegar skipin er af þeirri stærð að geta ekki lagst upp að. Fyrsta skemmtiferðaskipið af 12 sem koma til Grundarfjarðar í sumar er væntanlegt þann 4. júní nk.
 

Upplýsingar um Steinþórsmótin gegnum tíðina.

Steinþórsmótin voru meðal fyrstu verkefna sem Ungmennafélag Grundfirðinga tók sér fyrir hendur. Ég undirritaður er nú að vinna að því að skrifa sögu Steinþórsmótanna fyrir næstu útgáfu af Fólkið- fjöllin - fjörðurinn og væri þakklátur að fá upplýsingar og myndir frá þeim sem á hverjum tíma voru þáttakendur eða komu að framkvæmd mótanna sem haldin voru víða um sveitina og kröfur um vallaraðstöðu voru ekki flóknar, sléttur bali og sandgryfja og mótið var haldið. Upplýsingar, frásagnir og myndir frá mótunum má senda á undirritaðan á tölvupóstfangið gunnarkris@simnet.is   
Með von um góð og mikil viðbrögð
Gunnar Kristjánsson
 
Fleiri greinar...
Facebook MySpace Twitter Digg Delicious Stumbleupon Google Bookmarks RSS Feed 

Vikublaðið er í

sumarfríi til

10. ágúst 2010

Hafið gott sumar!

Ritstjóri

<<  Ágúst 2010  >>
 S  M    M  F  F  L 
  1  2  3  4  5  6  7
  8  91011121314
15161718192021
22232425262728
293031