Vísindamenn hafa sýnt fram á að í samstarfi fólks að tilteknu málefni verði til afl sem kallað er félagsauður. Félagsauður byggir á þátttöku fólks í ýmis konar félagasamtökum eins og íþróttafélögum, kórum, vinahópum, foreldrasamstarfi og stjórnmálaflokkum. Erfitt er að mæla félagsauð en flest bendir til þess að hann hafi áhrif á velferð, hagsæld og heilbrigði einstaklinga og samfélaga (Mbl 2006).
Í Grundarfirði er gott að búa. Það lýsir sér í því að nýir íbúar staldra oftast lengi við í sveitarfélaginu. Fjöldi félagasamtaka er nokkur og margir eru í fleiri en einu eða tveimur félögum eða tómstundastarfi. Ekki hefur verið tekið saman hve mörg félög eru hér eða hvað meðlimir eru margir en þeir gætu verið margföld íbúatala sveitarfélagsins. En íbúarnir eru ekki bundnir átthagafjötrum. Maður kemur í manns stað og stöðug íbúatala bendir til að hér búi margir sem vildu kynna sér félögin og starf þeirra og auka þannig velferð sína og samfélagsins.
Þeir sem vilja fræðast meira um hugtakið félagsauð geta slegið því upp í leitarvél á vefnum. SuN
****
Kynningardegi kvenfélagsins er frestað um sinn. Hafið samband. Sjá auglýsingu í Þey 10. sept.