Eldri fréttir
Þrjú lið Snæfellsnes í úrslit !

Stelpurnar í 4. flokki kvenna gulltryggðu ferð sína í úrslitakeppni íslandsmótsins í knattspyrnu 7 manna liða  með sigri á Stjörnunni 8-4 á Grundarfjarðarvelli á þriðjudag. Stelpurnar höfnuðu í 2. sæti síns riðils með 36 mörk í plús og töpuðu aðeins einum leik. Úrslitakeppnin fer fram á Víkingsvellinum í Reykjavík 21. og 22. ágúst nk.

Nánar...


Þessi vefur er prófaður og vottaður
samkvæmt alþjóðlegum stöðlum.

Erlendar fréttir
Borði

September

Aðalfundur Hjónaklúbbs Eyrarsveitar

Aðalfundur hjónaklúbbsins

Aðalfundur Hjónaklúbbs Eyrarsveitar verður haldinn fimmtudaginn 15. október nk. á Kaffi 59. kl. 20.30 Á dagskrá fundarins verða venjuleg aðalfundarstörf og kosin ný stjórn.

Félagar hvattir til að mæta.

Stjórnin

 

Uppskeruhátíð Ungmennafélags Grundarfjarðar

Uppskeruhátíð UMFG var haldin sunnudaginn 20. sept. síðastliðinn eins og venja er á hverju hausti.  Ekki var góð mæting hjá krökkunum á hátíðina en hún tókst samt með ágætum.  Verðlaunin voru gefin af Lengjunni ehf. GG lögnum ehf. og Taugum efh. og eru þeim færðar bestu þakkir fyrir stuðninginn.   Að verðlaunaafhendingu lokinni var boðið upp á pizzur og svala.  Stjórn UMFG þakkar þjálfurum, foreldrum og öllum krökkunum  fyrir gott og skemmtilegt ár. Þeir sem ekki mættu á hátíðina geta vitjað verðlaunanna hjá þjálfara sínum.  
Eftirtaldir hlutu viðurkenningar fyrir árið 2008 – 2009:

Lesa meira...

 

Félagslíf NFSN

Ýmislegt hefur verið á döfinni hjá nemendum FSN að undanförnu. Nýnemar voru vígðir inn í skólann með pompi og pragt í septemberbyrjun en yfir deginum var mikil leynd og höfðu nýnemar ekki hugmynd um hvað beið þeirra. Mikil tilhlökkun var fyrir deginum þar sem ekki var busun árið áður. Þegar busarnir mættu í skólann tók við heljarinnar dagskrá sem útskriftarnemar og stjórn nemendaráðs sáu um. Busarnir voru spreyjaðir með hárspreyi og klæddir í ruslapoka en svo áttu þeir að leika hin ýmsu fyrirbæri, dansa höfuð, herðar, hné, og tær og fleira skemmtilegt. Þegar öllu sprelli innan veggja skólans lauk gengu busarnir í halarófu upp í gil með stuttu stoppi við Kaupþing banka þar sem busarnir dönsuðu og sungu fyrir viðstadda. Upp í gil voru þau boðin velkomin með hákarlsbita og svo beið þeirra þrautabraut en í henni fólst meðal annars að skríða undir net, stökkva í gegnum dekk, gera magaæfingar og armbeygjur.

Lesa meira...

 

Breytingar hjá Félags- og skólaþjónustunni

Í kjölfar nýrrar stefnumótunar og áherslna hafa orðið nokkrar breytingar á starfsskipulagi Félags- og skólaþjónustu Snæfellinga.  Þá fagnar stofnunin áratugarafmæli sínu í vetur.

Megininntak breytinganna er aukin áhersla á faglega styrkingu starfsmannahalds og endurskipulagning starfshátta stofnunarinnar í kjölfar þess.

Sem fyrr eru rekstursaðilar FSSF sveitarfélögin hér á Snæfellsnesi, Grundarfjarðarbær, Helgafellssveit, Snæfellsbær og Stykkishólmsbær.  Þá þjónustar FSSF Eyja- og Miklaholtshrepp á sviðum barnaverndarþjónustu, skv. sérstökum samningi þar um.   Stjórn FSSF skipa þau Erla Friðriksdóttir, Stykkishólmi, formaður, Kristinn Jónasson, Snæfellsbæ og Sigríður Finssen, Grundarfjarðarbæ.  Starfsmenn FSSF starfa að félags- og skólaþjónustuþáttum í samráði og í umboði félagsmálanefndar Snæfellinga.  Hana skipa þau  Helga Sveinsdóttir,formaður, Stykkishólmi, Helga Guðmundsdóttir, Stykkishólmi, Baldvin Leifur Ívarsson, Snæfellsbæ, Lára Sverrrisdóttir, Snæfellsbæ og Matthildur Guðmundsdóttir, Grundarfjarðarbæ.

Lesa meira...

 

Morgunstund gefur gull í mund og Vikublaðið á netið

Fögnum nýjum degi með því að kíkja í blaðið sem er komið á netið og má skoða með því að smella hér.

Hafið góðan dag

Ritstjóri

 
Fleiri greinar...
Borði
Facebook MySpace Twitter Digg Delicious Stumbleupon Google Bookmarks RSS Feed 
<<  Júlí 2010  >>
 S  M    M  F  F  L 
      1  2  3
  4  5  6  7  8  910
11121314151617
18192021222324
25262728293031