Breytingar hjá Félags- og skólaþjónustunni
Í kjölfar nýrrar stefnumótunar og áherslna hafa orðið nokkrar breytingar á starfsskipulagi Félags- og skólaþjónustu Snæfellinga. Þá fagnar stofnunin áratugarafmæli sínu í vetur.
Megininntak breytinganna er aukin áhersla á faglega styrkingu starfsmannahalds og endurskipulagning starfshátta stofnunarinnar í kjölfar þess.
Sem fyrr eru rekstursaðilar FSSF sveitarfélögin hér á Snæfellsnesi, Grundarfjarðarbær, Helgafellssveit, Snæfellsbær og Stykkishólmsbær. Þá þjónustar FSSF Eyja- og Miklaholtshrepp á sviðum barnaverndarþjónustu, skv. sérstökum samningi þar um. Stjórn FSSF skipa þau Erla Friðriksdóttir, Stykkishólmi, formaður, Kristinn Jónasson, Snæfellsbæ og Sigríður Finssen, Grundarfjarðarbæ. Starfsmenn FSSF starfa að félags- og skólaþjónustuþáttum í samráði og í umboði félagsmálanefndar Snæfellinga. Hana skipa þau Helga Sveinsdóttir,formaður, Stykkishólmi, Helga Guðmundsdóttir, Stykkishólmi, Baldvin Leifur Ívarsson, Snæfellsbæ, Lára Sverrrisdóttir, Snæfellsbæ og Matthildur Guðmundsdóttir, Grundarfjarðarbæ.
Ráðnir hafa verið 2 sálfræðingar til starfa hjá FSSF, hjónin Inga Stefánsdóttir og Sigurður Ragnarsson. Inga þjónustar grunn- og leikskóla Nessins en Sigurður starfar ásamt öðru starfsfólki að barnaverndarmálum auk annarra starfssviða félagsþjónustunnar.
Sem fyrr er Hulda Skúladóttir kennslu- og námsráðgjafi í grunn- og leikskólum. Nýr starfsmaður í ráðgjöf er Guðlaug Helga Guðlaugsdóttir, guðfræðingur. Kemur hún í stað Herdísar Þór Snorradóttur, ráðgjafa, sem nú er í barnsburðarleyfi.
Stefán Jóhann Sigurðsson lætur nú af starfi skrifstofustjóra FSSF. Stefán Jóhann hefur gegnt því starfi allt frá stofnun Félags- og skólaþjónustu Snæfellinga eða í um 10 ár. Hann hefur lagt af mörkum drjúgan skerf við mótun skrifstofuhalds og þjónustu FSSF og alið af sér margan forstöðu- og starfsmanninn. Við þessi tímamót sendum við Stefáni Jóhanni okkar bestu kveðjur og þakkir fyrir starfsframlag hans hjá okkur þennan fyrsta áratug í starfsemi FSSF.Jafnframt óskum við honum og fjölskyldu hans allra heilla á þessum tímamótum í lífi hans.Eftir sem áður njótum við mikillar starfsorku Stefáns Jóhanns á hinum ýmsu sviðum félagsstarfs hér um slóðir og víðar.
Ég býð nýtt starfsfólk FSSF velkomið til starfa og óska nú sem fyrr góðs og þýðingarmikils samstarfs okkar við íbúana, félög og stofnanir á Snæfellsnesi um alla vegferð og velferð íbúa svæðisins. Frekari upplýsingar um hlutverk og starfsemi FSSF má sjá í bæklingi sem borinn verður inn á öll heimili á Snæfellsnesi innan skamms, sömuleiðis á heimasíðu okkar, fssf.is.
Sveinn Þór Elinbergsson, forstöðumaður.




