
Árlega er efnt til svokallaðrar vímuvarna-viku með það að markmiði að vekja athygli landsmanna á mikilvægi forvarna, einkum forvörnum sem snúa að börnum og unglingum. Verkefnið ber yfirskrift-ina Vika 43 og stendur að þessu sinni yfir dagana frá 18. október til 24. október.
Vel upplýstir foreldrar eru góð forvörn og mikilvægt er að foreldrar eigi gott samstarf um vímuvarnir sín í milli og við skólann. Nú hafa verið stofnuð foreldrafélög
við framhaldsskólana og þar starfa foreldraráð samkvæmt nýjum menntalögum. Forvarnarfulltrúar og náms- og starfsráðgjafar í framhaldsskólum eru lykilfólk í samstarfi heimila og skóla um aldurshópinn 16 – 18 ára.
Foreldrar kannabisneytenda hafa lýst þeirri reynslu sinni að hafa grandalausir sofnað á verðinum og ekki þekkt þau einkenni sem koma fram við upphaf kannabisneyslu hjá ungu fólki. Hvernig byrgjum við brunninn?