Vísindavaka W-23 2009
Vísindavaka W-23 var haldin þann 14. nóvember síðastliðinn í Félagsheimilinu Klifi í Ólafsvík. Þar kynnti W-23 rannsóknir sýnar og aðra starfsemi fyrir ungum sem öldnum og eins og sagt var frá í auglýsingunni, var margt til þess að sjá og snerta.
![]()
Í boði var að taka þátt í getraun og voru margir sem spreyttu sig á aldursgreiningu minks, skarkola, hnísu og beitukóngs. Tveir vinningshafar voru dregnir úr réttum svörum, þau Jana Hermannsdóttir og Gylfi Örvarsson og fá þau bókina Ströndin í náttúru Íslands, áritaða af höfundi Guðmundi Páli Ólafssyni í verðlaun.
Aðsókn að vökunni var mjög góð og viljum við þakka gestum góðar undirtektir og ánægjulegan dag.




