Eldri fréttir
reglugerð um öryggisbúnað barna

Til foreldra og forráðamanna.

Af gefnu tilefni viljum við minna á reglugerð um öryggisbúnað barna.

 

Í 71. gr. umferðarlaga segir m.a.:
Ökumaður skal sjá um að í stað öryggisbeltis, eða ásamt því, noti barn viðurkenndan
barnabílstól, beltispúða eða annan sérstakan öryggis- og verndarbúnað ætlaðan börnum lægri en 150 sm á hæð. Ef slíkur búnaður er ekki í bifreið skal nota öryggisbelti fyrir barnið

Barn sem er lægra en 150 sm á hæð má ekki vera farþegi í framsæti bifreiðar sem búin er
uppblásanlegum öryggispúða fyrir framan sætið.

Nánar...


Þessi vefur er prófaður og vottaður
samkvæmt alþjóðlegum stöðlum.

Erlendar fréttir
Borði

Nóvember

Jólin eru að koma - undirbúningur þeirra hafin - lesið það í nýjum Þey

41. tbl. 26. nóv. 2009Nýtt Vikublað er nú komið á vefinn og má n.a. nefna að auglýstur er aðventudagur Grundarfjarðar nk. laugardag, opnun Vinahússins Grund, jólaopnun Norska hússins í Stykkishólmi og margt fleira.

Hægt er að skoða blaðið með því að smella hér

 

Eigið ánægjulega helgi og aðventu

 

Ritstjóri

 

Vinahúsið Grund

Vinahúsið GrundG - leði, R - eisn, U - mhyggja, N - ánd, D - ugur.
Í húsi verkalýðsfélagsins, Borgarbraut 2.

Rauða kross deild Grundarfjarðar hefur ákveðið að feta í fótspor deildarinnar á Akranesi sem hefur starfrækt húsið HVER um nokkurt skeið. Aðalmarkmið húsins er að gefa þeim sem heima sitja stað til að hittast á, ég vil, get og skal verða leiðarljósin í starfinu. Samstarfsaðilar í þessu verkefni eru Verkalýðsfélagið og Grundarfjarðarbær.

Þessi aðstaða er ætluð fyrir alla þá sem hafa dottið út úr hlutverkum sínum í lífinu, vegna veikinda t.d. geðrænna, slysa eða áfalla eins og atvinnumissi. Hver einstaklingur verður boðinn velkominn á sínum forsendum til styttri eða lengri dvalar. Þar mun starfsmaður Rauða kross deildarinnar Steinunn Hansdóttir í hlutverki húsmóður, hlúa að hugmyndum sem hver og einn kemur með eða kynnist á staðnum t.d. námskeiðum, sjálfsuppbyggingu, föndri, tölvuvinnslu, líkamsrækt eða öðru sem hugurinn stendur til.

Opið húsverður fimmtudaginn 26. nóvember milli kl 14.00 og 16.00 og eru allir velkomnir, en fyrirhugað er að húsið verði opið til að byrja með tvo daga í viku, þriðjudaga og fimmtudaga á sama tíma.
 

Vinningshafar Vísindavöku

Vinningshafar VísindavökuÁ vísindavöku, sem haldin var af hópnum W23 þann 14. nóvember síðastliðinn í Félagsheimilinu Klifi, Snæfellsbæ, var gestum boðið að taka þátt í getraun. Verðlaun voru tvö eintök af bókinni Ströndin í náttúru Íslands, árituð af höfundi, Guðmundi Páli Ólafssyni. Dregið var úr réttum svörum og upp komu nöfn tveggja 8 ára barna, þeirra Jönu Hermannsdóttur og Gylfa Örvarssonar. Myndin var tekin við afhendingu verðlaunanna. Aðstandendur vísindavökunnar óska þeim til hamingju með vinningana og þakka þeim og öðrum fyrir þátttökuna.

 

W23 er samstarf fimm náttúrutengdra stofnana á Snæfellsnesi sem efla vilja náttúruvísindi, þær eru: Háskólasetur Snæfellsness, Náttúrustofa Vesturlands, útibú Hafrannsóknastofnunarinnar í Ólafsvík, Vör Sjávarrannsóknarsetur við Breiðafjörð og Þjóðgarðurinn Snæfellsjökull.  Samstarfið er styrkt af Vaxtarsamningi Vesturlands.


 

 

Jólin eru komin í Norska húsið í Stykkishólmi

Jólasveinn í Norska húsinuNorska húsið opnar n.k. laugardag, 28. nóvember, hina árlegu jólaopnun sem orðin er hluti af dagskrá hússins. Húsið verður opið daglega fram til jóla kl. 14.00-18.00 sem og á fimmtudagskvöldum  kl. 20.00-22.00.

 Undirbúningur jólaopnunarinnar hefst í byrjun nóvember með því að tínt er til jólaskrautið sem til er í safninu og er það orðið töluvert safn af gömlu skrauti sem og yngra. Veitir ekki af tímanum því opinber stefna starfsmanna er að ofskreyta eins og hægt er, og alls staðar þar sem hægt er að pota niður einhverju glansandi eða með glimmer, er það gert og má segja að nú sé húsið alskreytt frá jarðhæð og upp í ris. T.a.m eru uppsett 20 skreytt jólatré og eru 90 ár á milli þess elsta og yngsta. Þá er gömul eftirgerð af gamla Borgarholtsbænum í Eyja- og Miklaholtshreppi, stofa hjónanna Sigríðar og Guðmundar um eða upp úr 1960, eftirgerð af gömlu kirkjunni í Stykkishólmi og sömuleiðis nýju kirkjunni. Þá má sjá nýjustu viðbót við safnmuni safnsins Aton-giftingarstólana úr gömlu kirkjunni í Stykkishólmi. Einnig má sjá jólasveinana sem stóðu í glugganum í Kaupfélaginu og síðar í

Lesa meira...

 
Fleiri greinar...
Facebook MySpace Twitter Digg Delicious Stumbleupon Google Bookmarks RSS Feed 

Vikublaðið er í

sumarfríi til

10. ágúst 2010

Hafið gott sumar!

Ritstjóri

<<  Ágúst 2010  >>
 S  M    M  F  F  L 
  1  2  3  4  5  6  7
  8  91011121314
15161718192021
22232425262728
293031