Eldri fréttir
Þrjú lið Snæfellsnes í úrslit !

Stelpurnar í 4. flokki kvenna gulltryggðu ferð sína í úrslitakeppni íslandsmótsins í knattspyrnu 7 manna liða  með sigri á Stjörnunni 8-4 á Grundarfjarðarvelli á þriðjudag. Stelpurnar höfnuðu í 2. sæti síns riðils með 36 mörk í plús og töpuðu aðeins einum leik. Úrslitakeppnin fer fram á Víkingsvellinum í Reykjavík 21. og 22. ágúst nk.

Nánar...


Þessi vefur er prófaður og vottaður
samkvæmt alþjóðlegum stöðlum.

Erlendar fréttir
Borði

mars

Grunnskólanemum fækkar ár frá ári í Grunnskóla Grundarfjarðar

Hagstofa Íslands hefur sent frá sér tölur um nemendur og starfsfólk í grunnskólum í október 2008. Á landsvísu hefur grunnskólanemum fækkað ár frá ári síðan 2003 þegar fjöldi barna í grunnskólium landsins var hæstur síðan farið var að taka saman hagtölur um grunnskóla árið 1997. Grunnskólanemum af erlendum uppruna fer þó fjölgandi og eru nú tæp 5%. Í grunnskólanum í Grundarfirði eru nú 127 nemendur, þar af 55 drengir á móti 72 stúlkum. Árið 2001 voru 211 grunnskólanemar í Grundarfirðiog hefur því fækkað um nær helming. Ef skoðaðar eru tölur á landsvísu eru 9,3 nemendur á bak við hvert stöðugildi kennara. Nemendum á stöðugildi kennara hefur fækkað ár frá ári, og voru 9,5 nemendur á hvert stöðugildi í fyrra. Haustið 1998 voru 13,3 nemendur á hvern kennara. Að meðaltali eru 18,3 nemendur í bekk en þá eru sérskólar og sérdeildir ekki taldar með. Bekkjarstærð vex með hækkandi aldri nemenda. Að meðaltali eru fæstir nemendur í 1. bekk, eða 16,2, en flestir nemendur í 10. bekk, eða 19,7. Á vef hagstofunnar hagstofan.is er hægt að nálgast ýtarlegri upplýsingar og tölur.

 

VINNINGSHAFAR NORTHERN WAVE 2009

Um síðustu helgi fór fram í annað sinn kvikmynda- og menningarhátíðin Northern Wave í Grundarfirði. Um 200 manns sóttu hátíðina heim, bæði erlendis frá sem og heimafólk og var öll gistiaðstaða í Grundarfirði fullbókuð um helgina en bærinn býr bæði að hóteli og farfuglaheimili. Hátíðin var opnuð með kokteil í boði Grundarfjarðarbæjar en sýningar hófust svo með erlendum stuttmyndum. Gjörningahópurinn The Weird girls tók upp myndband og heimildarmynd á meðan á hátíðinni stóð og frumsýndu brot úr henni á laugardeginum en þá voru sýndar teiknimyndir og tónlistarmyndbönd. Á hátíðinni voru ekki aðeins sýndar stuttmyndir heldur voru einnig haldnir fernir tónleikar með hljómsveitunum Dlx Atx, Sykur, Anonymous og ameríska harmonikkuleikarinn Matt Rock en á laugardagskvöldið sáu Dj Kiki-OW og DJ MOKKI úr Weird girls um tónlistina. Á laugardeginum hélt franski leikstjórinn og gestadómari hátíðarinnar í ár Bertrand Mandico fyrirlestur fyrir fullu húsi og sýndi brot úr myndum sínum. Á sunnudeginum voru svo sýndir tveir klukkutímar af íslenskum stuttmyndum. Hátíðin var haldin í samkomuhúsi Grundarfjarðar en hápunktur hátíðarinnar var á sunnudaginn þegar verðlaunin voru kynnt. Fyrstu verðlaun að upphæð 100.000 krónur voru veitt stuttmyndinni “Smáfuglum” eftir Rúnar Rúnarsson. Önnur verðlaun að upphæð 70.000 krónur fékk pólska klippimyndin “The Wedding” eða Giftingin eftir Maciek Salomon sem var viðstaddur hátíðina ásamt vini sínum Maciek Szupica sem vann verðlaun á hátíðinni í fyrra fyrir besta tónlistarmyndbandið. Sérstaka viðurkenningu fékk svo myndin “Harmsaga” eftir Valdimar Jóhannsson. Fyrstu verðlaun í flokki tónlistarmyndbanda fékk myndbandið “Hair” eftir Milos Tomic frá Tékklandi. Verðlaunin voru styrkt af tveimur stærstu fyrirtækjum Grundarfjarðar, Guðmundi Runólfssyni hf. og Soffanías Cecilssyni hf. Hátíðin hefur nú fengið styrk frá Menningarsjóði Vesturlands fyrir næsta ár svo allt bendir nú til þess að Northern Wave festa sig í sessi árlega á þessum fyrstu vetrarmánuðum í Grundarfirði. 

 

 

Dögg Mósesdóttir

Alþjóðlega Kvikmyndarhátíðin Northern Wave

info@northernwavefestival.com

www.northernwavefestival.com


 

Fimm ættliðir í beinan kvenlegg

5 ættliðiðr í beinan kvenlegg

Fimm afkomendur í beinan kvenlegg.
Svanborg Rósamunda Kjartansdóttir, frá Vindási, varð 93 ára þann 23 janúar s.l. Á myndinni er hún ásamt dóttur og öðrum afkomendum hennar í beinan kvenlegg. Afkomendur Svanborgar eru orðnir nú 95 talsins.

Frá vinstri eru Karen Ýr Þórarinsdóttir (18 ára móðir), Svandís Lóa Ágústsdóttir (43 ára amma), Árdís Lilja Hauksdóttir ( tveggja mánaða dóttir),  Svanborg Rósamunda Kjartansdóttir (93 ára langalangamma og er frá Vindási) og Jónína Guðrún Nóadóttir (64 ára langamma).


 
Borði
Facebook MySpace Twitter Digg Delicious Stumbleupon Google Bookmarks RSS Feed 
<<  September 2010  >>
 S  M    M  F  F  L 
     1  2  3  4
  5  6  7  8  91011
12131415161718
19202122232425
2627282930