Eldri fréttir
Ályktun frá stjórn Kennarasambands Íslands

Stjórn Kennarasambands Íslands lýsir yfir fullum stuðningi við baráttu Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna fyrir bættum launakjörum. Stjórnin hvetur Launanefnd sveitarfélaga til að hverfa frá þeirri stefnu sinni að fjötra starfsmenn sveitarfélaga í spennitreyju lágra launa. Það er ólíðandi að grunnlaun starfsmanna sveitarfélaga sem lægst hafa launin skuli ekki hækka í það minnsta til jafns við það sem gerst hefur almennt meðal launafólks á Íslandi að undanförnu.

Stjórn KÍ hvetur sveitarstjórnarmenn til að sýna sanngirni og ganga þegar í stað til samninga við Landssamband slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna.

Nánar...


Þessi vefur er prófaður og vottaður
samkvæmt alþjóðlegum stöðlum.

Erlendar fréttir
Borði

mars

Vetrarmót félags eldri borgara í Boccia.

Eldri borgarar á Boccia æfinguEldri borgarar í Grundarfirði hafa ýmislegt fyrir stafni alla jafna en þessa dagana æfa þeir stíft fyrir Vetrarmótið í Boccia sem fram fer í íþróttahúsinu Grundarfirði um næstu helgi.  Í vikunni þegar blm. leit við á æfingu í íþróttahúsinu fengust þær upplýsingar að búast mætti við spennandi keppni nk. laugardag þar sem um 13 lið etja kappi í þessari vinsælu íþrótt. Í hverju liði eru 3 liðsmenn og bera liðin hin frumlegustu nöfn s.s. „Rauðu ljónin, Strákarnir og Kirkjufell " , svo eitthvað sé nefnt . Þátttakendur á mótinu verða frá Borgarnesi, Grundarfirði og Snæfellsbæ og er öllum heimilt að koma og fylgjast með keppninni sem hefst kl. 11  laugardaginn 14. Mars.

 

Vaka kastaði á óvenjulegum tíma

Þann 6. Mars kl. 8 um morguninn kastaði Vaka hans Rúnars á Kverná. Hryssan fæddist í 6,5 stiga frosi  og miklum snjó.  Hún er fífil bleik og hlaut nafnið Lukka. Það er mjög sjalfgæft að folald fæðist á þessum árstíma.

 

Rúnar með LukkuRúnar Þór Ragnarsson heldur á folaldinu sem hlaut nafnið Lukka.

 

 

Þakklæti og viðvörun

www.eXeS gallery. com

Ég vil þakka öllum þeim fjölmörgu sem færðu mér gjafir, blóm og heimsóttu búðina á opnunardegi. Verið velkomin(n) líka að skoða úrvalið á heimasíðunni  minni. Hún mun taka breytingum á næstunni þar  sem fleiri myndir, upplýsingar um vörur og verð verða birtar. Það er líka gaman að sjá ykkur í galleríinu til að skoða vörurnar.

Ég vil nota tækifærið og segja frá mjög óskemmtilegri reynslu sem ég lenti í nýlega. Ég var rukkuð um 65.400 kr. (upphaflega 80.304 en var lækkað við gerð reiknings) fyrir smíði á tveim hillum og skorun á nokkrum plötum (eins og á myndinni). Þetta tók fagmenn alls 13 klukkustundir. Vegna þess að ég spurði ekki fyrirfram um verð var ég rænd. Svona rukkun kallast ekki viðskipti, þetta er  óréttlæti og siðleysi, þetta er bara RÁN. Ég vil senda boðskap til allra – spyrjið alltaf um verð fyrirfram, jafnvel þótt þið haldið að varan kosti ekki meira en krónu.
Hillurnar sem um er rætt í greininni

Til að loka pistlinum ekki á neikvæðan hátt, vil ég sérstaklega þakka Guðmundi Runólfssyni hf. og athöfninni  á Hring SH fyrir umhyggju og hjálpsemi en KB bílprýði fyrir skjót viðbrögð, fagmennsku og síðast en ekki síst, fyrir lágt verð. Gangi ykkur vel strákar.

Með kveðju, Ela.

 

 

Samfés

Föstudaginn 20. febrúar var haldin hin árlega Samfés hátíð í Laugardalshöllinni í Reykjavík. Þessi hátíð er tileinkuð unglingum á aldrinum 14-16 ára. Samfés er þó ekki bara árlegt ball heldur inniheldur það allskyns atburði, t.d.  Stíl sem er hönnunarkeppni, söngvakeppni, rímnaflæði sem er rappkeppni, þar sem framkomendur semja lög og texta sjálfir, og allskyns fleiri uppákomur. Oftast nær er það þó þannig að aðeins 9.-10.bekkur fá að fara á hátíðina, aðallega vegna kostnaðar. Oft hefur dagskráin samanstaðið af skautaferð, kringluferð, sundferð og að lokum sjálfu samfésballinu.
Í ár fóru krakkarnir í 9.-10. bekk á Samfés. Dagskráin samanstóð að því að fyrst var farið í keiluhöllina í Öskjuhlíðinni og skemmtu krakkarnir sér konunglega. Eftir keiluferðina var farið í Kringluna í verslunarleiðangur og þaðan í sund í Laugardalslauginni. Eftir æðislega sundferð var ferðinni heitið á ársháðíð Samfés í Laugardalshöllinni. Fram komu á ballinu Dr. Spock, Páll Óskar, Bloodgroup, Veðurguðirnir og auk þess fjórar unglingahljómsveitir.
Ballið gekk vel fyrir sig og krakkarnir skemmtu sér vel. Við komum heim ca hálf 3 um nóttina.

  Bingókvöld í Eden
Að lokum viljum við þakka fyrir alla þá sem styrktu okkur í fjáröfluninni.

 Fyrir hönd 9. og 10.bekk
                                   Særós Ósk, Anna Júnía og Þorgrímur Magni

 
Fleiri greinar...
Borði
Facebook MySpace Twitter Digg Delicious Stumbleupon Google Bookmarks RSS Feed 
<<  September 2010  >>
 S  M    M  F  F  L 
     1  2  3  4
  5  6  7  8  91011
12131415161718
19202122232425
2627282930